Hvar eru stjórnvöld?
Hvurnig er þetta með hann Bush greyið. Ætlar hann ekki að fara að átta sig á því að á Íslandi ríkir stjórnarkreppa? Talibanar æða hér um allar sveitir. Davíð hættur. Dóri tekinn við og búinn að setja í gang kjarnorkuvopnaáætlun sem miðar að því að vera tilbúinn til árása innan tveggja ára. Landhelgisgæslan er í startholunum til innrásar á yfirráðasvæði Bandaríkjahers á Miðnesheiði. HVUNÆR MEGUM VIÐ VÆNTA INNRÁSAR BNA TIL AÐ LINA ÞJÁNINGAR VORRA LANDSMANNA?
Hvur veit nema gerð verði innrás í Baggalútíu. Gera stjórnvöld hér sér grein fyrir því? Er til viðbragðs og varnaráætlun Baggalútíu? Er herinn í viðbragðsstöðu, eða sitja bara allir og borða rúnnstykki með sultu á sunnudagsmorgnum og er alveg sama?