— GESTAPÓ —
Pollýanna
Nýgræðingur með  ritstíflu.
Pistlingur - 5/12/04
Neikvæðni og leiðindi.

Fyrirgefið mér hvað þetta er stutt, elsku vinir.

Hvert sem maður fer hér á Gestapó þessa dagana er allt fullt af skítkasti og leiðindum. Rifrildi út af öllu mögulegu. Sumir gestir hérna virðast hreinlega vera stofnaðir til að rífast og skammast út af engu. Það hlýtur að vera erfitt til lengdar að vera svona neikvæð. Hefur þetta alltaf verið svona?

Ég hvet ykkur, Bagglýtingar, til að leiða hjá ykkur þau skrif sem fer á einhvern hátt í taugarnar ykkar. Það er hellingur af hlutum til að gleðjast yfir.

Brosið bara og hugsið jákvætt!

   (1 af 1)  
5/12/04 17:01

Isak Dinesen

Fólkið er í fýlu - en gæti verið í meiri fýlu (býst ég við.)

5/12/04 17:01

Ég sjálfur

Skál fyrir friðnum!

5/12/04 17:01

Vladimir Fuckov

Og skál fyrir því að hjer sje skálað í miðri viku ! Leggjum vjer hjer með formlega til að hjer verði allsherjar gleðskapur [Kemur með fullan gám af ákavíti og ný-últrakóbaltsdufti].

5/12/04 17:01

Hakuchi

Ég hef nú ekki tekið eftir þessum óeirðum. Reyndar hefur verið fjandi rólegt hérna í prófatíð.

Skál öngvu að síður.

5/12/04 17:01

Furðuvera

Ég veit ekki til þess að hér hafi nokkur rifrildi farið fram... þú ert kannski bara extra vingjarnleg og bjartsýn, Pollýanna.

5/12/04 17:01

Texi Everto

Skál fyrir Smábagga

5/12/04 17:01

Ugla

"Neikvæðni og leiðindi"
Góða besta...!

5/12/04 17:01

Sæmi Fróði

Pollýanna, óþarfi að vera svona neikvæð.

5/12/04 17:02

Smábaggi

Ég svara þessu ekki.

5/12/04 18:01

Goggurinn

Skál fyrir alhliða ömurlegheitum!

5/12/04 18:01

albin

Hvaða skítkast er þetta. Tvímælalaust leiðinlegustu skrifin hér ever.

[Glottir við hné]

Nei annars, þú ert ágæt(t)

Pollýanna:
  • Fæðing hér: 20/4/05 22:33
  • Síðast á ferli: 5/8/05 11:42
  • Innlegg: 0