Í dag hló ég að fréttasíðu Baggalúts. Kenni ég reyndar um bjórdrykkju, slæmum svefni, slitróttu kaffiþambi og því að ég var kitlaður af samstarfsmanni á sama tíma.
En samt - hvað er næst? Fer ég að benda á fatlað fólk, hía á einfeldninga eða pota í bumbuna á ókunnugu fólki sem er mér feitlagnara?
Fer heimur versnandi eða hvað?
Já, þú segir nokkuð. Hlærð að sannleikanum?!
Ég get þó játað það á mig að hafa kannski einu sinni eða tvisvar flissað að einhverju sem hefur haft spaugilega hlið í alvarleika málsins.
Ég held þú sért samt afsakaður fyrst þú varst illa sofinn.
Passa mig orðið á því að lesa ekki forsíðu Baggalúts eða önnur skrif ráðstjórnarinnar stuttu áður en ég raka mig.
Hef í tvígang nær þurft að sækja höfuðið í vaskinn.
Mér finnst þetta alveg sleppa þanniglagað.
Bara passa að missa sig ekki út í einhverja helvítis vitleysu...