— GESTAPÓ —
Herbjörn Hafralóns
Heiðursgestur.
Dagbók - 4/12/03
Ofsóknir

Um daginn reyndu stjórnarmenn Baggalútíu morðtilræði við mig með því að koma fyrir sprengju í tebolla mínum. Nýjustu upplýsingar segja þó að það hafi verið hlerunartæki, sem sprakk.
Síðustu daga hef ég orðið var við óvenju mikinn hávaða í þvottavélinni þegar hún er að vinda. Á ég að búa mig undir það að hún springi þá og þegar? Ég held ég hafi samband við sprengjuleitardeild Landhelgisgæzlunnar, svei mér þá.

   (29 af 32)  
4/12/06 08:01

Offari

Þetta er eitthvað gruggugt með þessa þvottavél.

5/12/06 00:00

krossgata

Hlerunartæki, er það þess vegna sem þér finnst andspyrnan ekki eiga erindi við Hlerunarstofnun?

3/12/07 09:00

krossgata

Ertu búinn að fá þér nýja þvottavél?

5/12/07 17:01

Herbjörn Hafralóns

Já, og uppþvottavél líka.

Herbjörn Hafralóns:
  • Fæðing hér: 15/8/03 18:28
  • Síðast á ferli: 13/7/21 13:54
  • Innlegg: 35350
Eðli:
Vammlaus miðaldra gáfumaður, sem ann sannleikanum í fréttum Baggalúts, er með stafsetningu á hreinu og hefur næmt skopskyn. Vinur Færeyinga.
Fræðasvið:
Ohmslögmál. Hópatferli rafeinda í torleiðurum.
Æviágrip:
Herbjörn fæddist í sjávarplássi við Faxaflóa um miðja öldina sem leið og telst því líklega með eldri gestum Baggalúts. Alinn á þverskorinni ýsu, kjötsúpu og fleira góðmeti og fékk lýsispillur í skóla. Var samt pasturslítill og horaður í æsku en hefur nú náð kjörþyngd. Tekur lýsi daglega. Sótti framhaldsskóla og stundaði ýmis störf á sumrin. Byrjaði frekar seint að drekka og telur sig hófdrykkjumann. Herbjörn vinnur tæknistörf í þágu hins opinbera en eftir að hann ánetjaðist Baggalúti hafa vinnuafköst stórminnkað. Hefur þó enn ekki fengið áminningu í starfi.