Með virðingarfullri afsökunarbeiðni til Tigru ... freistingin var einfaldlega of mikil
Nú hef ég verið að velta fyrir mér hinum ýmsustu íþróttum upp á síðkastið.
Sumar íþróttir hafa í gegnum tíðina verið taldar afar kapítalískar, á meðan aðrar íþróttir hafa fengið á sig titilinn "kommalegar" séu þær stundaðar af sósíalistum.
Kapítalískar íþróttir hafa t.d. talist fótbolti, sérstaklega ruðningur, box og glíma og aðrar álíka.
"Kommalegar" íþróttir eru svo gjarnan íþróttir á borð við ballet og hinar ýmsustu dansíþróttir, listdansskautar sem og aðrar álíka íþróttir þar sem enginn er illa barinn.
Nú þykir mér afar erfitt að skilja röksemdafærsluna á bakvið þetta því ég veit ekki betur en að í balletti, listdansskautum og öðrum dansíþróttum séu þeir karlmenn sem stunda þær íþróttir að gera slíkt einir, eða með félaga; sýna af sér einstaklingsframtak og sjálfstæði.
Fótbolti hinsvegar, sérstaklega ruðningur, eru karlmenn að nuddast hver utan í annan, henda sér hvor á annan... já jafnvel vinna hver með öðrum og eiga allt sameiginlegt. Engu máli skiptir til dæmis, þegar upp er staðið hver skorar markið; það er liðsheildin sem skiptir máli.
Hversvegna í ósköpunum finnst engum það kommalegt?
---
Já svei.
Ég skil svona ekki alveg.
Stórskemmtilegt fjelagsrit en þjer steingleymið að nefna skák þar sem andstæðingarnir stara stundum hvor á annan langtímum saman.
Hver ætlar að greina skáktöffaraklíkuna, eru þeir hommar, kommar eða eitthvað annnað.
Skáktöffarar eru manntegund sem kallast óforbetranlegir nördar, sama hversu miklu púðri þeir eyða í að þykjast vera kúl.
Tja, Fischer vann Spassky hérna á Íslandi 1972 - er skák þá ekki kapítalistaíþrótt?
NORN!!!
Ég er fllur en ég verðskulda ritdóm frá þer´!
ps.þ
það elskar mig engin.
Ég held að allir hommar hljóti að vera kommar.
Ekki eru þeir í það minnsta sjálfstæðismenn... [starir út í loftið]
Minnir að þjóðaríþrótt meðlima kommúnistaflokka um víða veröld sé svokölluð sjálfsgagnrýni sem gengur út á það að viðurkenna sekt sína og hljóta svo symbólíska refsingu fyrir vikið. Ekki svo symbólísk ef menn leggja sig ekki alla fram.
Með fullri virðingu fyrir skrifum Kisu þá er þessi afbökun nokkuð brosleg..
Listdans er mjög kommalegur, það er rétt. Og þetta er besti laumuþráður í heimi.
Nei sko, laumuþráður... glíma er sko ekkert kommaleg. Hún er einfaldlega þjóðleg.