Ég fékk þau forréttindi nýlega að fá að fara inn í yfirheyrsluherbergi hjá lögreglunni í Reykjavík. Herbergið var fremur lítið og húsgögn fábrotin. En þó var eitt sem vakti athygli mína, símaskrá, en enginn var síminn. Afhverju að hafa símaskrá í símalausu herbergi..ekki er fólk lamið með símaskrá við yfirheyrslur..er það nokkuð ?
Nei, vitaskuld ekki. Þessi símaskrá er vitaskuld notuð sem hurðastoð og ekkert annað.
Já það kemur ekkert annað til greina, hurðastoð, bollahaldari eða hvaðeina. Vér vitum allir að Löggan í Reykjavík er 110% heiðvirð og sanngjörn.
Ja, ég held að lögreglan þjáist bara af minnimáttarkennd. Notar hana örugglega sem setu fyrir litlu varðstjórana!
Ætli þeir séu ekki með farsíma eins og annað fólk og finnst þægilegt að glugga í símaskrána meðan glæpahyskið þegir við yfirheyrslur.
Er hún ekki bara þarna fyrir handrukkara svo að þeir geti barið lögguna án þess að meiða sig greyin, var þetta 2004 útgáfan, og þokkalega vel með farin, ja maður veit ekki, ekki gott að segja.
Kannski leiðist þeim heil ósköp við yfirheyrslurnar og lesa sér til skemmtunar í símaskránni á meðan yfirheyrslum stendur
Jeg held að Amon hafi verið með óráði. Það eru eingar símaskrár í yfirheyrsliklefum okkar ástkæru lögreglu. Kanski ein og ein kilfa. Ekki símaskrá.
Þetta er ný yfirheyrsluaðferð. Menn fá að velja milli skilyrðislausrar játningar eða læra símaskrána utan að.
Svo ég svari kannski Omegaone, þá var ég þarna sem sakborningur, en eins og allir aðrir sakborningar þá er ég saklaus. En hundinginn hefur greinilega ekki litið inn í svona yfirheyrsluherbergi því þarna var vissulega um 1488 blaðsíðna barefli á borðinu fyrir framan mig.
Já, ég hef lent í því að vera prófaður úr símaskránni. Ég náði ekki að læra nema A og B, lengra komst ég ekki. Eftir að hafa fallið á öllum spurningum úr H og E var ég laminn með skránni í hausinn og síðan hent út.