— GESTAPÓ —
Hexia de Trix
Heiðursgestur.
Pistlingur - 1/12/04
Í skólanum, í skólanum...

Jafnvel "ómerkilegasti" skólabókalærdómur getur orðið hinn merkilegasti

Samkvæmt frétt http://mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1118601 [tengill] Mbl.is [/tengill] bjargaði 10 ára stúlka yfir 100 mannslífum með því að rifja upp það sem hún lærði í skólanum hálfum mánuði fyrr.

Litla stúlkan - Tilly Smith frá Bretlandi - var nýbúin að læra í skólanum sínum hvað einkennir stórar flóðbylgjur. Eins gott að Tilly litla tók vel eftir í skólanum, annars hefði hún dáið.

Nokkrum vikum áður en Tilly var í þessum örlagaríka skólatíma, voru íslensku skólabörnin ekki að læra neitt í sínum skóla. Það er af því að fullorðna fólkið vildi ekki borga kennurunum almennileg laun fyrir að dæla lífsnauðsynlegum fróðleik í börn landsins.

Það var nú eins gott fyrir þessa 100 baðstrandargesti á Maikhao-strönd að fullorðna fólkið á Bretlandi er ekki svona nískt.

   (27 af 32)  
1/12/04 02:02

Skabbi skrumari

Orð að sönnu... Salút

1/12/04 02:02

Smábaggi

Uss.

1/12/04 02:02

Vladimir Fuckov

Þetta er magnað en vér efumst þó af einhverjum ástæðum um að svona fróðleikur sé hluti af námsefninu í íslenskum grunnskólum.

1/12/04 02:02

Hexia de Trix

Jú reyndar rámar mig í að hafa einhvern tímann lært eitthvað svipað í íslenskum grunnskóla. Hins vegar hef ég blessunarlega aldrei þurft að nota slíkan fróðleik mér til lífbjargar.

1/12/04 03:00

kolfinnur Kvaran

Svona fróðleik sóttist ég eftir sem 10 ára barn en þurfti að láta mér lynda að hlusta á hina stama sig fram úr stafrófinu og 3 sinnum töflunni. Ég hef alltaf litið hornauga á skólakerfið. Því segi ég: látum börnin lesa lútinn.

1/12/04 03:00

Ívar Sívertsen

HEYR HEYR Kolfinnur! jú... reyndar heyrheyr á Hexið líka

1/12/04 03:01

voff

Þetta er massív frétt og sýnir vel á hvers konar villigötum íslenskt skólakerfi er. Við erum að pína ofan í krakkana einhver bölvaðan óþarfa og vitleysu sem mun aldrei bjarga þeim úr háska. Reynið bara að þylja fimm sinnum töfluna næst þegar Hekla gýs eða bjarga ykkur undan snjófljóði með kvíslgreiningu. Nei, það þarf að taka þetta til rækilegrar endurskoðunar. Jarðfræði með sérstöku tilliti til margvíslegrar náttúruvár. Læknisfræði með sérstakri áherslu á bráðalækningar og stöðvun smitsjúkdómaútbreiðslu. Skyndihjálp. Akstur sjúkrabifreiða, sjúkraflug, gerð og notkun talstöðva. Reykköfun, köfun í vatni, meðfeð hættulegra efna, viðbrögð við efna-, sýkla- eða kjarnorku- slysi eða árás. Viðbrögð við hættulegum dýrum, dyravarsla á skemmtistöðum, meðferð eiturlyfja þ.m.t. rétt skammtastærð, afeitrun fíkla, þjófavarnir. Björgun úr fjallendi, af jöklum, úr sandbleytu. Byggingarverkfræði með áherslu á hættuminnkandi eiginleika. Notkun neyðarbúnaðar þ.m.t. björgunarbáta og línubyssu. Notkun endurskinsmerkja. Sund. Ísklifur. Fallhlífarstökk. Notkun kreditkorta. Rétt viðbrögð við Nígeríubréfum. Þetta er það sem við eigum að vera kenna krökkunum. Ekki einhverja vitleysu eins og kristnifræði eða dönsku sem mun aldrei nýtast neitt.

1/12/04 03:01

Nornin

Ekki gleyma mikilvægi þess að gera skattaskýrslur. Það ætti að vera fag í 10. bekk grunnskóla.

Annars er þetta mjög umhugsunarvekjandi grein. Við gleymum því stundum að börn geta líka vitað um hvað þau eru að tala. Oft er bara blásið á það sem þau segja sem vitleysu. Gott að foreldrar þessarar stúlku hlustuðu á hana.

1/12/04 03:01

Hilmar Harðjaxl

Já, og það er ekki erfitt að finna fög sem mætti skipta út fyrir sumt af því sem voff taldi upp fyrir ofan. Kristinfræði, lífsleikni, söga og myndmennt eru fög sem við gætum komist af án.
Annars er skyndihjálp kennd, en alls ekki nógu vel. Ein kennslustund á viku í eitt ár, í fimmta eða sjötta bekk minnir mig.

1/12/04 03:01

Hexia de Trix

Lífsleiknin mætti sosum alveg haldast inni, það þyrfti bara kannski að endurskoða hugtakið "lífsleikni".

1/12/04 03:01

Wonko the Sane

Ég hef alltaf skilið hugtakið lífsleikni þannig að þar eigi að læra eitthvað til að komast betur af í lífinu. þannig að það sem voffi taldi upp er þá líflsleikni

1/12/04 03:01

Heiðglyrnir

Mér finnst svolítið týnast hérna, hvað við á íslandi erum lítið til í að fjárfesta í börnunum okkar og framtíðinni, sem að ég held að taki flestum öðrum vitleysum okkar fram, menntun er máttur. fjárfestum í menntunn eins og við eigum lífið að leysa, í því liggur okkar framtíðararður.

1/12/04 03:01

Hexia de Trix

Rétt hjá Heiðglyrni. Við þurfum að muna hverjir eiga eftir að stjórna landinu þegar við erum komin á elliheimilið.

1/12/04 03:01

Heiðglyrnir

Miss Trix , að ég ekki tali um!!!!

1/12/04 03:02

B. Ewing

Munu Hexía líka hvernig þeir stjórnuðu landinu sem ráða núna þegar þeir verða komnir á elliheimili og sjúkrastofnanir. Þá fá þeir aldeilis að finna fyrir tevatninu!!

[bruggar djöfulleg launráð í bakherbergi]

1/12/04 04:00

Ívar Sívertsen

[skiptir á brugginu]

1/12/04 04:00

kolfinnur Kvaran

( býr til lista yfir kennara og aðra sem vöfðust fyrir undirrituðum á sínum tíma, fær smá brugg lánað hjá B. Ewing, en lofar að skila aftur)

1/12/04 04:00

litlanorn

hvað varð til dæmis um hina ágætu varúðarsíðu símaskrárinnar um viðbrögð við kjarnorkuvá? vér kaldastríðsbörn sofum vart rótt þegar enginn rifjar þetta upp reglulega. en að öllu gamni slepptu finns mér að setja ætti upp sumarnámskeið fyrir börn og unglinga í sjálfsbjargarviðleitni almennt, fara á fjöll, týnast í óveðrum, læra að sjóða egg..og svo framvegis *skál*

Hexia de Trix:
  • Fæðing hér: 9/11/04 23:04
  • Síðast á ferli: 22/2/23 12:33
  • Innlegg: 5327
Eðli:
Prakkaranorn
Fræðasvið:
Galdrar, töfrar, hrekkir, tvíræðni, bókasafns- og upplýsingafræði.
Æviágrip:
Missti stjórn á sjálfri sér þegar hún var stödd í Undirheimum fyrir nokkru og náði happapeningnum þegar Frelli lagði gildru. Er nú stoltur eigandi happapeningsins, en man ekki lengur hvað hún ætlaði að gera við hann.