— GESTAPÓ —
Wonko the Sane
Óbreyttur gestur.
Dagbók - 3/12/06
Heiðglyrnir Dóni?

Maður er nefndur Dan og hann passar mig fyrir dónunum

Á vinnustað mínum er er mikil perravörn er kallast Dans Guradian. Þessi vörn passar að ég sé ekki að þvælast á síðum eins og h***.is, b2.is eða husler.com.
Eins þá les hann Danni innihald síðanna og ef honum finst innihaldið að einhverju leiti ósiðlegt eða andfélagslegt þá stoppar hann mann með orðunum :

"Access to the page: http://www.einhverdónasíða.com/... has been denied for the following reason:"

Weighted phrase limit exceeded.

En málið er að þessi villa kemur á öllum félagsritum Heiðglyrnis þannig að ég er að verða voða spentur að vita hvað hann er að skrifa í félagsritunum sínum.

   (2 af 29)  
3/12/06 16:01

The Shrike

Þú verður að fá það sent í einkapósti frá honum. [Íhugar að skrifa eitthvað dónalegt til að sjá hvort Wonko hætti þá að geta séð sitt eigið félagsrit]

3/12/06 16:01

krossgata

Á mínum vinnustað er svipuð perravörn með öðru nafni. Sú meinar mér ekki aðgang að neinu félagsriti, hins vega get ég ekki vitnað í ummæli Vladimirs eða notað hans fulla nafn í tilvitnunum eða innleggjum. Þetta kemur ekki að sök og les ég því allan dónaskapinn frá Heiðglyrni með áfergju.

3/12/06 16:01

Carrie

Já, dónaskapurinn í Heiðglyrni, annað eins hefur vart sést á gjörvöllu internetinu.
[Flissar og skálar]

3/12/06 16:01

Jarmi

Ég hef ekki lesið neitt eftir hann í háa herrans tíð, svo ég er ekki dómbær á meintan sora úr honum.

3/12/06 16:01

Vladimir Fuckov

Ætli Wonko og krossgata vinni á skrifstofum Vinstri grænna ? [Klórar sjer í höfðinu og veltir fyrir sjer hvernig óvinalisti þeirra líti út]

En úr því að þetta kemur á öllum fjelagsritum Heiðglyrnis gæti það þýtt að nafn hans sje dónalegt [Reynir að koma auga á eitthvað dónalegt við það nafn].

3/12/06 16:01

Skabbi skrumari

Listi yfir félagsrit Heiðglyrnis sést við öll félagsrit hans... því gæti verið að eitt félagsritið sé að loka á öll hin... en það ber heitið ávaxtakarfa erotica...

3/12/06 16:01

Skabbi skrumari

... og nú gæti vel verið að Wonko sjái ekki lengur þetta félagsrit...

3/12/06 16:01

Vladimir Fuckov

[Hrökklast afturábak og hrasar við]
Nú fer greinilega að verða nauðsynlegt að nota aðferðir spammara ef hjer á að yrkja kl.a.mfengið:

Ekkert Kl.áM og bönnum blá.Tt
bannað ekki 'klamið'.
Ef því glaðir gleymum brátt
glæp vjer höfum framið.

3/12/06 16:01

The Shrike

Vladimir: Þetta er snilld! [Skálar]

3/12/06 16:01

krossgata

Nú er ég komin heim og get lesið allt dodo sem mig lystir og klæmst og vitnað í Vladmir Fuckov undir fullu nafni. Vinn samt ekki á skrifstofum Vinstri grænna. Ljómandi Kl@m hjá forseta Fuckov.

3/12/06 18:01

Wonko the Sane

Dan finnst nafnið Heiðglyrnir ekkert dónalegt því að ég sé það út um allt hann bara vill ekki opna félagsritin. Og ég vinn ekki á skrifstofu vinstri grænna, heldur á stað þar sem yfir 1000 ungmenni hafa aðgang að neti og því eru þessar aðfarir taldar nauðsynlegar

3/12/06 18:01

Billi bilaði

En þú getur ennþá lesið þetta félagsrit þrátt fyrir orðið sem Skabbi skrifaði í sinni fyrstu athugasemd?

5/12/06 08:00

Billi bilaði

Greinilega ekki. Til hamingju með Rafmælið!

Wonko the Sane:
  • Fæðing hér: 8/11/04 08:05
  • Síðast á ferli: 5/11/13 08:42
  • Innlegg: 64
Eðli:
Alveg þrjár og hálf stjarna
Fræðasvið:
Sérfræðingur í stökíómetrískum reikningum um fenómenin í ranimoskinu
Æviágrip:
Fæddur og að mestu uppalinn.