— GESTAPÓ —
Von Strandir
Fastagestur.
Gagnrýni - 5/12/04
Er kominn tími á frí?

- Leiðindaskarfar reyna að skemma Gestapó...aftur -

Síðustu dægrin hafa nokkrir leiðindapésar stormað inn á Gestapó og hafið leiðindi, t.d. með því að taka sér lík nöfn og annálaðir heiðursmenn. Hakuchi og sjálfur Enter eru dregnir í svaðið í gríntilraun einhverra gríslinga, það er ekki heiðvirðum Gestapóum þóknanlegt að horfa upp á slíkt.

Ég man eftir annarri tilraun til gríns. Það var upphlaup þeirra ljótukalla í nóvember. Sá tími var skammarlega leiðinlegur og þess valdandi að ég fór rúmlega 4 mánaða frí frá Gestapó. Ég minnist umræðum þeirra dægra með hryllingi og vona að það stefni ekki í það sama núna.

   (3 af 10)  
5/12/04 20:01

Smábaggi

Svona karakterar lognast alltaf út af. Það liggur í eðli þeirra. Hafðu ekki áhyggjur.

5/12/04 20:01

Ívar Sívertsen

Þessi atlaga að Enter þykir mér mjög léleg! Einnig atlagan að Hakuchi! Ég frábið mér að einhver taki upp mitt nafn og geri úr því einhverja skrumskælingu!

5/12/04 20:01

Sæmi Fróði

Sá einhvers staðar að það yrði sumarfrí.

5/12/04 20:01

Hóras

Sammála Smabagga...ef það er hægt. En ég er mjög hissa á því að þú skulir líkja þessa pésa við Ljótukallafjelagið sem olli raunverulegu uppnámi á sínum tíma. Þessir grallarar eru ekki að vekja nærri því álíka viðbrögð.

5/12/04 20:01

Kaktuz

Það væri nú leiðinlegt ef að einhver myndi sverta þitt góða nafn Ívar.

5/12/04 20:01

Steinríkur

Ívar - ertu að tala um eitthvað á borð við Raví Nestrevís?

5/12/04 20:01

Nornin

Nei Kristallur þú mátt ekki fara í frí.
Þú verður að berjast við þessa svínslegu náunga með okkur hinum!
[Sönglar internationalinn]

5/12/04 20:02

Sívar Ívertsen

Frí er ekki hollt. Niður með leiðindin.

5/12/04 20:02

Rasspabbi

Skál fyrir Sívari, hann lengi lifi!

SKÁL!

5/12/04 22:01

hlewagastiR

Voru atlögur? Mikill asskoti var að missa af því. Til dæmis var tími ljótukallanna lang-lang-langbezti tíminn sem nokkru sinni hefur verið hér á Lútnum. Og ekki spillti fyrir að losna við Kristall í 4 mánuði í leiðinni. Eintóm gleði.

Von Strandir:
  • Fæðing hér: 20/10/04 14:19
  • Síðast á ferli: 18/2/20 16:56
  • Innlegg: 430