Flestir eru búnir að staðfesta veru sína í rútunni, en ef einhverjir eiga það eftir þá bið ég viðkomandi að staðfesta sem allra allra fyrst, í síðasta lagi í kvöld eða eldsnemma í fyrramálið. Þeir sem ekki eiga far á þeim tímapunkti eiga ekki öruggt sæti í bílnum.
Akstursplan er ekki komið en þar sem flestir eru Glúmur þá er einsýnt að upphafspunktur verði hjá, eða í nágrenni við Þarfa.
Þeir sem ekki verða hjá Þarfa verða að gefa mér upp hvar þeir vilja að rútan komi við á leið sinni á áfangastað.
UPPFÆRT:
Þar sem einungis 3 Gestapóar hafa ekki svarað einkapósti um ætlaðan brottfararstað og einu Gestapóarnir sem ætla kannski ekki á þingið verða næstum 263 metra fjarlægð frá þinginu þá sýnist mér rútuáætlunin verða svona.
Rútuáætlun útgáfa 4.118H.2010:
20:45 Brottför frá Þarfaþingi
20:50 Brottför frá peningageyminum (ef öllum þar hundleiðist ekki og þau hlaupa á þingið)
21:00 Stoppað fyrir Grágrími (mundu hlaupaskóna vinur...)
21:12 Áætluð koma á árshátíð
um 1:00 Brottför til baka, með möguleika á "dropp-off", ef þið verðið stillt og prúð.
Er ekki erfitt að stjórna rútuni þegar hjólin eru á lofti? Er ekki hægt að biðja farþegana að sitja framar?
Jeppinn er mun fagurri fararskjóti og gegnir betur svo ég læt rútufjandann eiga sig.
Þið getið stoppað hérna hjá Fakta sjoppunni, verð þar klukkan 21.
En djö ætlið þið að keyra rútuna hratt...