Þessi jól virðist sem ein bók muni vekja athygli Bagglýtinga framar örðum.
Í klóm Baggalúts
Guðjón Sveinsson
Myndskr.: Erla Sigurðardóttir
Folaldið Dögun og hvolpurinn Doggur eru vinir. Þau leika sér daglega niður við ána. Handan hennar er skuggalegur dalur. Þar býr svartálfurinn Baggalútur í háum drangi. Hann hefur lengi reynt að gera gull en ekki tekist. Fyrir tilviljun kemst hann að því að nái hann folaldinu muni ósk hans rætast. Hann fær hrafnahjón til að aðstoða sig við að ræna leikfélögunum og loka þá inn í dimmum afhelli. Til að komast inn í hellinn, þarf að ná lyklinum að dyrunum. Það er ekki auðvelt. Lykilsins gætir dularfullur vörður. Það er síðan lesenda að komast að því hvernig til tekst...
Vonandi fæ ég að sjá dóm um þessa bók bráðlega.
Heimildaskrá:
http://bokatidindi.oddi.is/listi/bokavefur/bokatidindi_ytarlegt.php?b_id=4196&argangur=2006
Ég er sannarlega fastur í klóm Baggalúts. Ég hef þó engan áhuga á að losna þaðan. Þetta eru þægilegar klær.
Já, ég rakst á þetta líka. Hér er greinilega um að ræða enn eina tilraun falsmiðlanna til að koma óorði á hið góða Baggalúts-nafn.
Lævís, óbeinn og dulbúinn áróður óvina ríkisins nær greinilega inn í barnabókmenntir þessa lands. Vjer neitum að láta 'frelsa' oss úr klóm Baggalúts.
Sammála þarfa, þetta eru þægilegar klær.
Miklu betri en klærnar á Tigru.
[Skoðar sárin sem urðu til á árshátíð]