Þetta graf hérna sýnir ótvírætt hver krosseignatengst mismunandi Gestapóa eru.<br /> Hlebbi kallinn er búinn að vera naskur á að rannsaka þetta til hlítar, þó eru nokkrar skekkjur í hans útreikningum en það þarf ekket að koma á óvart.
Eins og sjá má á grafinu, (frekar óljóst reyndar) þá eru innri tengst Gestapóa hér mun meiri en áður hefur komið fram. Það skal viðurkennast að Ég, Hvæsi, Ívar, Vladimir, Heiðglyrnir, Nornin, Limbri, Anna panna og Glúmur erum ein og sama manneskjan.
Offari á restina sem sést á grafinu en grafið í því miður engan vegin tæmandi. Þessvegna bætast á Offara eftirfarandi Gestapóar.
Feministi
Voff
Amma Hlaun
Hexía
Jóakim
Lopi
Enter
Gottskálk Grimmi
Gimlé
og
Bob
Sameiginlega stjórna þessar tvær valdablokkir eftirtöldum aðilum:
Sigfúsi
Furðuveru
Tríóinu Gaz, Gir og Zim
Limbra
Gísla Eiríki og Helga
Texi Everto
og
Smábagga
Hlebbi á heiður skilinn fyrir ötult en á köflum ónákvæmt starf. Fyrir eljuna fær hann fimm stjörnur en vegna fyrrnefndrar ónákvæmni dregst af honum ein stjarna.
Til hamingju með rafmælið Þarfi en þar sem ég er að tala við sjálfan mig samkvæmt grafinu þá hlýt ég að vera eitthvað klikaður. [klórar sér í höfðinu]
Elsku barnið mitt ekki hafa letrið á myndinni svona smátt. Ég get ekki lesið þetta. Hugsaðu nú um okkur gamla fólkið næst þegar þú teiknar mynd handa okkur.
Tek heilshugar undir með ömmu. Letrið á þessari annars fallegu mynd er allt of smátt.
En þú færð þrjár stjörnur Bobby litli fyrir frumkvæði og viðleitni. Já og eina í kaupbæti fyrir að hreinsa mitt nafn af aukaegó-syndinni sem kemur næst erfðasyndinni hér á Gestapó.
Já, hringurinn var tekinn að þrengjast verulega, það er gott að þetta er komið fram í dagsljósið... [starir þegjandi út um gluggann]
Þú þarna BéJúvíng! Feminista verður aldrei bætt á Offara, þetta smátröll, hvernig dettur þér þvílíkt og annað eins í hug. Ég er núna svo band-ösku-brjáluð og móðguð að ég næ ekki andanum.
Grafið er ekki tæmandi. Grafið um Glúm einan er helmingi stærra og með helmingi smærra letri.
Gott að fá þetta fram því það sannar það sem ég hef alltaf sagt en það er að ég er ég sjálfur og tæplega þó
Fífl er sá sem þetta fjelagsrit reit.
Bjúffing veit ekkert hver ég er og ekki er ég eign Offara.
Farið í rassgat.
Hér verður að stíga varlega niður fæti. Þessi miklu krosseignatengsl gætu ýtt undir að lánshæfismat Gestapó verði lækkað niður um flokk.
Rannsóknarverkefnið sýnir greinilega fram á svo ekki er um villst að í raun er ég ekki til. Það þýðir að þau ykkar sem eru að skrifa á þessari vefsíðu eru öll kleifhugar, og að ég er þar af leiðandi ímyndaður persónuleiki sem hvert og eitt ykkar bjó í raun til á sama tíma!!!
æjbkoæubjðoubhðoubohoðhðoooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo ooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo