Enn og aftur í fyrsta sinn hefur rannsóknarspæjari Baggalúts komi upp um stórfellt samsæri á Íslandi! (ekki stórhneyksli kannski, en fær þó 3 stjörnur)
Leyninúmer Ríkisins er FUNDIÐ! Þar er endalaus bið fyrir þá sem vilja og er greinilegt að þjónustufulltrúar landsins hafa nær allir sameinast um að flytja grandalausa borgara landsins símtalsflutningum á þettan talsímalega útnára.
Númerið virðist tengjast Mosfellssveit tryggum böndum og er það ástæðan fyrir því að innrás Reykjavíkur í enn meira fjalllendi náði ekki til Mosfellsbæjar. Númerið sem um ræðir er 566-0066
.
Mosfellsbæjarhneykslið! (Aukahneykslið)
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Ríkisstjórnarinnar til að útrýma Mosfellsbæ þá hefur sú aðgerð því miður misheppnast agerlega. Undanfarinn tvö ár hefur verið lögð fram sú stefna að hver sá sem reynir að sleppa úr, eða í gegnum, Mosfellsbæinn mun enda á hæli fyrir sjóveika ökumenn, utan vegar eða hreinlega festast í einhverjum af þeim þúsundum hringtorga sem komið hefur verið fyrir með leynd víða um bæinn. Einnig hefur staðið fyrir átak í því að kljúfa samstöðu bæjarbúa með því að sprengja bæinn í sundur frá suð-suðaustri til norð-norð-vesturs en allt kemur fyrir ekki.
Greiningardeild ríkislögreglustjóra grunar að svonefndur "sími" og "hjólreiðahestur" séu helstu tól andspyrnuhreyfingarinnar í bænum og hefur fyrir skipað algert símtalabann innan 362 metra radíus við uppreisnarsvæðið.
Áætlanir eru upp um að drepa fólk á svæðinu úr leiðindum. Einnig er í bígerð að opna öskuhauga borgarinnar hvenær sem vindátt er hagstæð og reyna þannig að drepa fólkið úr fýlu.
Hafa fýla og leiðindi reynst ríkisstjórnninni hagstæð vopn hingað til og eru miklar vonir bundar við þessar ráðagerðir.
Vinnur rannsóknarspæjarinn nú hörðum höndum við að koma upp um handbendi skoðanakannana og lagersölusímanúmer fíkniefnalögreglunnar en um bæði númer hafa fengist áræðanlegar heimildir um.
Hér hefur verið unnið mikið og óeigingjarnt rannsóknarstarf, þakka þér fyrir þýðingarhjálpina
elsku drengurinn minn. Auðvitð eigum við að kommenta á hvorn annann, allir sem einn.
Ég myndi klappa þér og hughreysta, en ég kann ekki að gera svona grænt á þessum innleggum þegar um innlegg á félagsrit er að ræða, þannig að ég læt mér nægja að hringja í þetta númer og óska svaranda til hamingju með afmælið.
ég er svona svia stråkur sem hevur skipt um kyn thrisfar sinnum eller var det stelpur jag er fan vet men konurin minn och jåg vil setta in en mynd af jag hvernig gerir vi.
Björgum Mosfbæ. Hafnafjörðu er víst líka kominn í vörn og hefur lært mikið af hertækni Mosfellsbæjar.
Hvernig er það, af hverju er dagsetningin 15. febrúar 2006 en ummæli sem hér birtast frá því í janúar og mars 2005? Veit Vlad af þessu?
Ah! Auðvitað, þetta gerist ef maður uppfærir ritið seinna, þá verður það nýrra en ummælin.
Það er bara skylda að koma við á öllum laumupúkaþráðum í dag - virkum eða óvirkum, vottuðum sem óvottuðum.