— GESTAPÓ —
Félagsrit:
krumpa
Fastagestur og  sagnaþulur.
Gagnrýni - 31/10/06
Svartir þjófar.

Að saka mann um eitthvað af því hann er svartur er vitaskuld talsvert annað en að saka svartan mann um eitthvað...

Fyrir örfáum dögum var ég stödd á ónefndum norrænum flugvelli. (Þetta var ekki Kastrup og er eingöngu ónefndur þar sem ég man ekki nafnið enda var álíka líflegt þarna og á flugvelli Hornafjarðar).

Alla vega - þar sem ég var á leið í tengiflug og þ.a.l. ekki akandi (ekki allir lögfræðingar sem eru ökustútar) var tilvalið að drepa tímann með sötri göróttra drykkja sem voru staddir á bartetri þarna á vellinum.

Og nema hvað, að sötri loknu var víst ekkert annað eftir en að borga og rölta svo í næstu vél. Rölti ég með allan minn handfarangur (kolólöglegan að þyngd raunar svo nú er hægri fóturinn þjappaður saman af ofurburði og átján sentimetrum styttri en sá vinstri) að kassanum og hugðist borga. Vildi þá ekki betur til en svo að posinn var bilaður og án þess að segja aukatekið orð fór þjónninn í labbitúr með debetkortið mitt.

Ég varð auðvitað skelfingu lostin enda ætlaði ég að nota kortið í að fylla í þær örlitlu loftglufur sem þó mátti finna í handfarangurstöskunni. Þá hef ég heyrt ótal skelfingarsögur af ferðamönnum sem lent hafa í því að gírugir þjónustustarfsmenn strauja kortið þeirra aftur og aftur og aftur og...

Þegar þjónninn birtist aftur (eftir ekki minna en fimm mínútur) spurði ég hann því hvað hann hefði verið að fara með kortið og hvernig ég gæti vitað að hann hefði ekki bara tæmt reikninginn...

Svarið sem ég fékk var svohljóðandi : "You think I steal because I´m black? You ask me this because I´m black?"
Ég hafði nú raunar ekki tekið eftir húðlit mannsins - og í huga mér var hann bara maðurinn sem tók kortið mitt. Maðurinn sem hafði öldungis gott tækifæri til að tæma reikninginn minn.
Ég reyndi svo að útskýra fyrir manninum að ég væri að spyrja af því hann hefði horfið með kortið mitt og húðlitur kæmi þar hvergi inn í jöfnuna. (Datt raunar í hug að segja að ég væri tortryggin af því hann væri Svíi en ákvað að gera ekki illt verra).

Mergurinn í þessum sögugarmi er semsagt sá að mér finnst það helv andsk hart ef það má ekki saka fólk sem hegðar sér undarlega um eitthvað án þess að vera stimplaður rasisti.
Hvar endar það? Má þá ekki saka feita um ókurteisi, sköllótta um svíðingshátt í umferðinni, konur um frekju, karlmenn um nauðganir, rauðhærða um fjársvik eða freknótta um dónaskap? Ég reikna t.a.m. að óheiðarlegt fólk sem misnotar greiðslukort sé af öllum kynjum, stærðum og gerðum.

Að lokum - ekki hata mig þó ég sé falleg!
Lifið heil.

   (19 af 114)  
31/10/06 23:01

Tina St.Sebastian

Fokking Svíar!

31/10/06 23:02

Nermal

Svo má heldur ekki tala niðrandi um fólk með gleraugu. Svíar er nottlega klikk

31/10/06 23:02

Tigra

Mér finnst í góðu lagi að hata svertingja... svo fremi sem þú hatar einstaklinginn persónu hans vegna en ekki út af einhverju öðru.
Svertingjar, hommar, feitir og aðrir minnihlutahópar eru ekkert heilagir. Þetta er fólk eins og við hin og það hlýtur þá að mega koma fram við þá eins og aðra.

31/10/06 23:02

Garbo

Þessi þjónn var nú ekki að hjálpa til við að eyða fordómum.

31/10/06 23:02

Óskar Wilde

Þetta er náttúrlega gjörsamlega ólíðandi með öllu.

Hefðir átt að spyrja hann á móti hvort hann teldi þig vera rasista eingöngu vegna þessu hversu óaðfinnanlega fögur þú ert.

31/10/06 23:02

Útvarpsstjóri

Eru ekki allir svertingjar þjófar? [glottir eins og fífl]

31/10/06 23:02

Upprifinn

Bíddu nú við Krumpa mín þú hlýtur að verða fyrir því að vera kölluð þjófur í tíma og ótíma verandi Lögfræðingur.

ha ha ha ha ha ha ha

31/10/06 23:02

krumpa

Nah - er ekki þannig. Er mest í sjálfboðavinnu og góðgerðum. En miðað við rökin hjá blessuðum þjóninum þá máttu ekki saka mig um neitt illt (jafnvel þó ég ráðist á þig og aki burt á bílnum þínum með veskið þitt) því það opinberar þá bara rasistískar hneigðir þínar í garð lögfræðinga.

31/10/06 23:02

krossgata

Þetta hefur mér lengi fundist. það má ekki hafa skoðanir á einstaklingum ef þeir tilheyra ákveðnum hóp - þá ertu ásökuð/-sakaður um að skoðanirnar séu vegna þessa sameiginlega sem einstaklingarnir í hópnum eiga. Ég velti fyrir mér hvort mesti rasisminn felist ekki einmitt í því - sem sagt þessum ásökunum í garð þess er skoðanirnar hefur.

31/10/06 23:02

blóðugt

Ég á ekki orð. Svona lagað er auðvitað alveg ólíðandi. Ég hefði brugðist nákvæmlega eins við.

1/11/06 00:01

Sundlaugur Vatne

Þeir einu sem má víst ásaka þessa dagana eru hvítir ófatlaðir karlmenn [brestur í óstöðvandi grát]

1/11/06 00:01

Skabbi skrumari

Nú er það svart...

1/11/06 00:01

Haraldur Austmann

[geispar]

1/11/06 00:01

Gísli Eiríkur og Helgi

Svíar eru krútt

1/11/06 00:01

B. Ewing

Helvítis hommafóbían ætlar gersamlega alla að drepa hérna inni! [Opnar gluggann og hristir úr poka djúpvitra en gersamlega tilgangslausra brandara út um hann]

1/11/06 00:01

Þarfagreinir

Var þetta nokkuð Ali G?

"Is it because I is black?"

1/11/06 00:01

Jarmi

Ég lamdi eitt sinn mann fyrir að tuska til kvensuna sína. Þetta var niðri í bæ og ég þurfti að elta hann í lengri tíma á bíl og... allavegana, ég reif hann úr hans bíl og við slógumst í lengri tíma. Þegar ég var búinn að slá hann 4-5 sinnum í götuna (og hann stóð alltaf upp eftir meiru) þá ákvað hann að liggja og hringja.
Hann hringdi í 3 félaga sína sem komu 5 mínútum seinna, þegar ég var í miðjum klíðum að útskýra fyrir mannræflinum að ef hann legði aftur hendur á konuna þá myndi ég mæta aftur og berja hann. Þessir 3 félagar hans mættu og ætluðu aldeilis að lumbra á mér!

En það besta í því var þetta: þeir ætluðu að berja mig fyrir að vera rasisti. Gaurinn sem ég var búinn að vera að lemja var nefnilega arabi og það voru félagar hans líka.

Það tók mig þó ekki nema örfá orð til að sanna að ég var ekki rasisti og þeir ákváðu að gera ekki meira mál úr þessu.

Þannig að! Þeim var skítsama þó svo ég hafi lamið vin þeirra, svo lengi sem ég var ekki rasisti. Hefði ég ekki getað sannað mig svona, þá hefði ég verið hakkaður á staðnum.

Magnað! Ekki satt?

1/11/06 00:02

krumpa

Sagan hans Jarma er alveg eins og sagan mín - bara meira krassandi!

1/11/06 00:02

krumpa

Ekki gleyma svo að hvíti maðurinn - aríinn - er í mesta minnihlutahópnum! Aumingja við...

1/11/06 00:02

Gísli Eiríkur og Helgi

Svíar eru krútt . að tala yllaum þá sem heild er sem að segja við mig að börnin mín , vinir og vinnufélagar séu
minni vyrði enn þettað helvítis baunapakk sem lét senda sig á brymarhólm og fyrir að aðens fanga silunginn í læknum þetaað lið af þrælum sem reið kananum í rassin á stríðsárunum væri eitt af vanþróunnar ríkjunum ef þeir hefðu ekki selt sál sína til Nató Á miðaðvið fólksfjöldapakkið sem ávalt reiknar inn smæð sína sem semvísbendingu á hetju dáðum sínum getur stungið hellvítis SS pulsonum sínum upp í Skarðsheiðina á sér

1/11/06 00:02

krumpa

Úff - ég hélt þér væri að fara fram í stafsetningu. En punkturinn er einmitt sá að ég var ekki að saka manninn um eitt eða neitt af því hann væri svartur eða Svíi. Ég er bara ekki hrifin af því að fólk hverfi á braut með greiðslukortin mín!

1/11/06 00:02

Gísli Eiríkur og Helgi

Ég er ekki að tala um sögu þína þó svo að þú byrjir hana með eð tala um að nefna Anoníma þjóð og endar með að tala um að sú var svíðjóð það sem ég tala um er allt hitt Svíar eru og svertingjar eru og dílikt sem ég sé hér á hverjum degi ekki beint enn óbeint Ég er þreittur á að vera stoltur á kostnað annara jafnvel halanegrin á sögu
í halanegralandinu fanst líka menning . Hin stolta þjóð Íslands hefur langa sögu af niðurlæingu sem líðríki
þeir eru anskotans ekki betri enn allir hinir Halanegrarnir
Ef ég skyldi vinna heiðarlegt starf við að þjóna fullum Íslendingum sem gæfu í skyn að ég væri þjófurr skildi ég bregðast við á sama hátt og þessi maður hvort sem ég væri kúfaður Færeyingur eða ættingi þrælahaldsins .
Einn hlut gleimdir þú að nefna ,Stal hann peningunum þínum ? er það ekki aðalatriðið

1/11/06 00:02

krumpa

Þú ert nú annaðhvort of ringlaður til að sjá aðalatriðið eða þú ert fullur sjálfur. Í fyrsta lagi þá drakk ég eitt rauðvínsglas (raunar ódrekkandi) svo ég var varla mjög full. Í öðru lagi var flugvöllurinn nafnlaus en ekki landið. Í þriðja lagi var ég alls ekki að gera lítið úr halanegrum (eins og þú kallar þá svo virðulega). Í fjórða lagi er það sjálfsögð kurteisi að fara ekki burt með greiðslukort annarra og það án þess að segja aukatekið orð. Í fimmta lagi er það eðlileg varkárni að fyrtast við þegar slíkt er gert. Í sjötta lagi hefði manninum verið frjálst að móðgast ef honum þótti ég vera að þjófkenna hann. Að telja mig gera það á grundvelli litarháttar er hins vegar firra. Hvort hann stal eða ekki er algert aukaatriði - það eru þessi furðulegu viðbrögð sem eru mergurinn málsins.

Vona þá að ég sé búin að stafa þetta ofan í þig þannig að þú skiljir.

Að lokum - Svíar eru hvorki betri né verri en aðrir og Íslendingar ekki heldur. Fólk er eins misjafnt og það er margt.

1/11/06 00:02

krumpa

Ps. GEH - ef ég spyrði þig sumsé hvað þú hefðir verið að láta þig hverfa með kortið mitt hefðir þú þá sakað mig um að vera fordómafulla í garð Íslendinga eða Svía? Það er náttúrlega bara bölvað kjaftæði. Að reiðast sem einstaklingur yfir þjófkenningu er eitt en það er fáránlegt að reiðast fyrir hönd heillar þjóðar eða kynþáttar.

1/11/06 00:02

Gísli Eiríkur og Helgi

Enþá einu sinni ég er ekki að krítisera félagsritið , heldur þetta'ð sem mér finst kvimleitt ofta er ´þessi þjóðernisremba sem kemur fram hér sem og annarstaðar hjá Íslendingum halanegrinn og brymarhólmur
eins og SS pulsurnar eru bara tákn til að sína að ég sé reiður Að lokum eru engir betri enn aðrir eina leiðinn til að gera það nokkuð huggulegt í sófa alheims er að færa sig um einn rass

1/11/06 00:02

Gísli Eiríkur og Helgi

Ps Svo allir fái pláss

1/11/06 00:02

Gísli Eiríkur og Helgi

Ég gæti líka Sagt að þessi maður væri hörundsár
bókstaflega talað og að hann hefði góða ástæðu til þess.

1/11/06 01:00

Hakuchi

Puh! Þessar fallegu og gáfuðu konur eru allar eins.

1/11/06 01:01

Z. Natan Ó. Jónatanz

Ja, nú er það svart – það er ljóst.

1/11/06 01:01

Haraldur Austmann

Hey! Ég raulaði þessa gagnrýni við "Hvíta máva" og það passar alveg. Krumpa er snillingur.

1/11/06 01:01

Offari

Það er fullt af rasistum hér það er oft ráist á mig fyrir það eitt að vera tröll.

1/11/06 05:01

Billi bilaði

Ég hélt með Svíum þegar þeir urðu fyrst heimsmeistarar í handbolta, og það þótti sko ekki fínt. <Ljómar upp>

krumpa:
  • Fæðing hér: 6/10/04 16:54
  • Síðast á ferli: 13/4/16 19:39
  • Innlegg: 328
Eðli:
Er ósköp ljúf og góð undir venjulegum kringumstæðum - þ.e. sé ekki mánudagur, fullt tungl, nýtt tungl eða óheppilegur tími mánaðarins ... Hefur leikið í fjölda Bond-mynda...
Fræðasvið:
Hefur yfirgripsmikla þekkingu á írskum drykkjuslögurum og breskum gamanþáttum frá áttunda og níunda áratugnum. Hefur aldrei horft á heila Bond-mynd....I was christened david anthony but yet inspite of that to my father i was william to my mother i was pat...
Æviágrip:
Ánetjaðist snemma ýmiss konar ósóma, eins og reykingum, kaffidrykkju, goggolíu og stóðlífi. Hefur nú séð ljósið á baggalúti og látið af illu líferni. Enda sæmir ekki annað virðingarstöðu hennar sem keisaraynju Baggalútíska heimsveldisins. Sést reyndar nokkuð í spilavítum (enda nokkurn veginn atvinnumanneskja í póker) og oftar en ekki með huggulegan, smókingklæddan mann sér við hlið.