Tölvan er ennþá dáin svo að til að létta lundina brá ég mér í kvikmyndahús á dögunum....
HUH
Vonbrigði, vonbrigði, vonbrigði.
Philip Hoffman var leiðinlegur, hann var hommalegur, talaði asnalega og hafði leiðinlegan kæk með höndunum. Ákaflega hommalega leiðinlegur eitthvað og vælutónn í honum. Var Keanu ekki á lausu? Svona lítið fallegt fólk á bara ekki heima á breiðtjaldinu.
Kjellíngin sem lék vinkonu hans var svo bara ekkert spennandi, ekki nógu sæt og óþarflega mikið klædd alltaf. Hefði viljað sjá Jessicu Simpson í þessu (eða bara Bart), þetta var voðalega alvarlegt allt eitthvað.... Alla vega var þetta mjög ótrúverðugur karakter sko, allar aðrar konur sem ég man eftir að sjá í bíói eru fáklæddar, mikið málaðar, sexí, og yfirleitt til í að leggjast á bakið.
Ljóti kallinn sem átti að hengja, minnti mig obbosslega á Joey. Hefði verið betra að sjá karakterleikarann Matt Le Blanc í þessu hlutverki. Há jú dúing?
Samtölin voru óttalega klén eitthvað, ekki nóg svona FOKKJÚ MOTHERFUKKER....fólk bara blaðraði og blaðraði, ekki nóg af ríðingum og byssuskotum. Meira að segja töluðu flestir í myndinni rétt mál!!! og notuðu orð sem voru meira en tveggja atkvæða.
Myndatakan, leiðinlega mikið af nærmyndum í myndinni, ekki nægilegur splatter bragur á þessu eitthvað. Þá var alls ekki nóg af tæknibrellum í þessari leiðindavellu.
Handritið - fannst það voða gloppótt eitthvað, ekki nógu gott plott sko. Hver nennir að horfa á mynd um hommarithöfund?
Glæpurinn, ekki nægilega blóðugur, ekki nóg af slími og blóði og svona.
Leikstjórnin: glötuð!!!!!!!! Enginn samleikur og bara Hoffman með sína hommatakta út í gegn. Ráðlegg leikstjóranum að fá sér vinnu í Wendy´s eða eitthvað, hann getur varla gert sér vonir um að lifa á þessu.
Semsagt - skelfing! Eini ljósi punkturinn var snillingurinn sem SVARAÐI TVISVAR í símann sinn á meðan myndinni stóð og TALAÐI (og það ekki lágt) í bæði skiptin.
Huh, ætli maður sé að verða skemmdur af hollívúddælunni? Annars; snilldarmynd, og ef eitthvað af ykkur á enn eftir að sjá hana þá ráðlegg ég ykkur að gera það í hvelli - og ef þið sjáið gaurinn með símann -þá.....skjóta fyrst og spyrja svo!
Kaldhæðni? Nei, alls ekki, er bara að reyna að lauma mér inn í hugarheim þeirra sem taka símana sína með í bíó - í þeim tilgangi að tala í þá !