— GESTAPÓ —
Félagsrit:
krumpa
Fastagestur og  sagnaþulur.
Sálmur - 5/12/04
Þankakorn í prófatörn...

Hvers eiga fílar að gjalda?
Því fá þeir aldrei nokkurn frið?
Hvers eiga fílar að gjalda?
Þó þeir gangi svona út á hlið?

Bara nokkuð sem ég hef verið að velta fyrir mér í prófunum - greinilegt að lesturinn hefur góð áhrif á gráu sellurnar...
Endilega látið vita ef við eruð með svarið..ætla svo að snúa mér aftur að skruddunum!

   (80 af 114)  
5/12/04 03:02

Smábaggi

Sálmur... HAHAHAHAHAHA. Nei, annars, mér fannst þetta ekki fyndið.

5/12/04 03:02

Þarfagreinir

En alvöru spurningin er auðvitað hvaðan 'Ég fíla fílakarmelur' kemur eiginlega.

5/12/04 03:02

Lómagnúpur

Kanski Ólafur Haukur viti það.

5/12/04 04:01

Hóras

Ég kannast vel við þetta með gráu sellurnar. Ég er á leiðinni í fyrsta prófið á morgun og síðast liðna 7 daga hef ég sett meira í "Hugljómunar Bókina" mína en ég hef gert alla þessa önn.
Gangi þér vel!

5/12/04 04:02

Skabbi skrumari

Jamm, gangi þér vel Krumpa mín...

krumpa:
  • Fæðing hér: 6/10/04 16:54
  • Síðast á ferli: 13/4/16 19:39
  • Innlegg: 328
Eðli:
Er ósköp ljúf og góð undir venjulegum kringumstæðum - þ.e. sé ekki mánudagur, fullt tungl, nýtt tungl eða óheppilegur tími mánaðarins ... Hefur leikið í fjölda Bond-mynda...
Fræðasvið:
Hefur yfirgripsmikla þekkingu á írskum drykkjuslögurum og breskum gamanþáttum frá áttunda og níunda áratugnum. Hefur aldrei horft á heila Bond-mynd....I was christened david anthony but yet inspite of that to my father i was william to my mother i was pat...
Æviágrip:
Ánetjaðist snemma ýmiss konar ósóma, eins og reykingum, kaffidrykkju, goggolíu og stóðlífi. Hefur nú séð ljósið á baggalúti og látið af illu líferni. Enda sæmir ekki annað virðingarstöðu hennar sem keisaraynju Baggalútíska heimsveldisins. Sést reyndar nokkuð í spilavítum (enda nokkurn veginn atvinnumanneskja í póker) og oftar en ekki með huggulegan, smókingklæddan mann sér við hlið.