Ég lenti í því fyrir alls eigi löngu að komast að því fyrir tilviljun að vinkona mín sem ég hefi þekkt í nokkra mánuði er í raun frænka mín ... nánar tiltekið þá voru afar okkar bræður. Þetta ku víst merkja að við erum þremenningar. Merkilegur fjandi það.
Hafa einhverjir fleiri lent í svipuðu?
Já hér!
Ég komst að því í vikunni sem leið að Baggalútur er náskyldur hálfbróður dætra afasystur minnar.
Hafi ég sofið hjá frænku minni langar mig helst ekkert að vita af því. Annars kom það mér skemmtilega á óvart hvað ég er líkur sjálfum mér.
Ég á helling af frændfólki sem eru þá feðrasynir eða dætur og svo á ég helling af kynbræðrum.
Merkilegt hvað þetta land er lítið...
Ég kann nú illa við duldar og óduldar aðdróttanir þess efnis að ég hafi framið sifjaspell. Umrætt samband er ekki þess eðlis og hananú!
Þetta hefði svosem getað verið verra. Þið hefðuð t.d. getað komist að því að bræður ykkar voru afar eða að afar ykkar voru systur, það hefði verið kjaftshögg.
En allavega, hafðu það gott Þarfi. Sjáumst síðar.