er þetta hægt?
Vegna ágætrar skammaræðu Enters yfir slagorði Símans, bendi ég á annað, síst betra, sem þó hefur verið í umferð í nokkurn tíma:
"Öruggur staður til að vera á"
Hverjum dettur svona lagað í hug? Verst er að þegar þessu er svo sargað inn í huga fólks dag eftir dag líður ekki á löngu þar til öllum finnst þetta eðlilegt og þjált orðalag.
Stundum finnst manni að þessir menn hljóti að hugsa upp efnið sitt á einhverri útlensku og hnoða því svo yfirá Íslensku til birtingar.