Fékk þetta í hendurnar í dag en kem bragarhættinum engan veginn fyrir mig.
Getur einhver sagt mér undir hvaða bragarhætti er kveðið?
Lömbin grísku ég má elta,
alpha, beta, gamma, delta;
epsílon, zeta, eta þeta,
á eftir í þeirra slóðir feta;
jóta, kappa, lambda lalla,
leiðina upp á sama hjalla;
my og ny þá silast með xí,
síðan trítla ómíkron, pí;
hró og sigma og tá þá tifa,
teygir rófuna ypsílon;
fí, kí, psí vilja líka lifa,
lengi er á einu von;
sum gild og feit, önnur mjó og mögur,
með ómega eru þau tuttugu og fjögur
-Vilmundur Jónsson, fyrrverandi landlæknir
Þekkir þetta einhver?
Þetta kallast nýlambdabragur... hefur verið lítið notaður síðan á dögum Jóns "Jötuns" Sigmundssonar frá Syðri-Hagabakkakinn í Glaumdal... en á tímum Móðunnar þróaðist þessi svokallaði nýlambdabragur upp úr fornlatínskum sagnakvæðum, en sá bragur leið lok við sviplegt andlát Jóns þar sem hann var að kveðast á við tröll nokkurt upp við Lágahnjúk, en það er önnur saga...
Til var eitt handrit með kvæðum Jóns og er það kom í leitirnar síðla á nítjándu öld, þá fóru menn að reyna sig við nýlamdabraginn aftur og svo virðist sem Vilmundur þessi hafi hitt naglann á höfuðið því hérna er á ferðinni klassísk meðferð á þessum bragi... Salút...
Ég held að hann sé að leita eftir alvöru svari. En nokkuð hnyttið hjá þér samt sem áður
Mér sýnist þetta vera bara óttalegt bull til að komast í gegnum gríska stafrófið.
Víst er þetta nýlambdabragur. Hann er náskyldur nýellbrag sem er hvað þekktastur úr vísunni um a bé sé dé.
Þetta eru 14 línur, og því líkist þetta helst sonnetu. Rímið er þó ansi frjálslegt og fylgir ekki neinu hefðbundu sonnetuformi sem ég þekki til.
Það gengur nú ekki að ekki sé skrifað í skýin á þessari vertíð.
[Skrifar í skýin]