Ef þú ert strákur verð ég því miður að biðja þig um að smella á bakktakkann. Núna...<br /> <br /> Ég meina það...<br /> <br /> FARÐU ADDNA!!!
Hæ stelpur! (Því það eru eingöngu stelpur sem eru að lesa þetta, er það ekki?? Blikkar stelpurnar sínar)
Á daðurþræðinum okkar góða spunnust um daginn skemmtilegar umræður um svokallaðan ‘burlesque’ dans og kom þá í ljós að nokkrar gestapíur deildu með sér áhuga á að kynna sér betur téðan dans. Nú erum við búnar að panta tíma hjá kennara og ætlum að mæta galvaskar hjá henni næsta laugardag og læra dilla bossunum okkar eins og það sé enginn morgundagur!
Ástæða þessara félagsritaskrifa er sú að þessi umræða gæti mögulega hafa farið framhjá einhverri ykkar sem hefði áhuga á að koma jafnvel með okkur á laugardaginn! Um er að ræða ca. tveggja tíma námskeið sem kennir okkur undirstöðuatriði í ‘burlesque’ dansi og gefur okkur tækifæri til að flissa og vera stelpulegar í smástund! Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast í einkapósti hjá mér...
Enga feimni, dillum okkur saman!
Ég er SVO með! [Tekur forskot á sæluna og byrjar að dilla sér og flissa]
Ég mæli með því stelpur að þi komið með!! Ágætt að kunna smá háklassastripp ! [Glottir]
[Fer eigi inn í fjelagsritið heldur sendir fjarstýrt vjelmenni dulbúið sem húsfluga (kvenkyns) þangað til að kanna hvað um er að vera og leita ummerkja um mögulega starfsemi óvina ríkisins]
Hrmpf.. Þið lásuð greinilega ekki formálann. [Hendir strákunum út af ritinu og bíður eftir stelpunum][Dillar sér smá á meðan]
Af hverju er ég að skrifa hér? Ég hef ekki einu sinni lesið félagsritið... alveg satt... hvaða dillibossa tal er hér í ummælunum? Annars var ég að spá í að bregða mér næsta laugardag í Burlesque dans, svona til að gleðja Hexiu.
Eigi ætlaði ég að lesa texta þennan, en forvitni um athæfi kvenveranna bar voran huga ofurliði, bið ég yður um náð og miskun þó svo framkvæmt hafi ég voðaverk þetta.
<Heldur fyrir augun á meðan þetta félagsrit er uppi á tölvuskjánum>
Ég verd med í anda og reyni ad dilla rassinum alein hérna í baunalandi.. thó svo ég viti ekkert hvernig thessi dans er.
[Heldur fyrir eyrun og les svo textann, fattar ekki fyrr en að lestri loknum að halda hefði átt fyrir augun] Úps!
Hmm... ég hef mikinn áhuga á að prufa þetta.
Hvar, hvenær, hvernig á ég að vera klædd og hvað kostar þetta?
Ritað var í þekktum dægurlagatexta, og tilvitnun hefst "Ég elska að dilla dilla, ég elska að dilla dilla" Mun slík stemning án efa skapast meðal áhangenda.
Var það ekki.. „Ég fíla'ð dilla dilla"
[Klórar sér í höfðinu]
Annars er ég nú ekki viss...
Hér get ég valsað um eins og mér sýnist! [Ljómar upp]
Hins vegar verð ég að skilja Blesa eftir fyrir utan.
Hrikalega spennó.....er bara svo feimin - auk þess sem minn bossi hristist alveg af sjálfu sér. Annars frábært framtak!
OHHHH - langar svooo.....
Ekki núna um helgina?? NEI.. væri hægt að fresta þessu um viku, bara fyrir mig?
Lokka: ef þú ert í alvörunni lokkandi hýr og sæt þá ættirðu nú að stökkva á tækifærið til að dilla þér með nokkrum vel völdum gestapíubossum!
Norn, ég sendi þér einkapóst með öllum upplýsingum um leið og ég er búin með þetta svar!
Krumpa, skelltu þér með og ekkert múður! Við getum þá í það minnsta farið í leikinn 'hvaða bossi hættir síðast að dillast'!! [Glottir eins og dillandi dansfífl]
Og Bleiki, helgin eftir það er komin fullnálægt prófum fyrir okkur flestar en ef það verður framhaldsnámskeið ertu meira en velkomin með og færð að vera með í tímaákvörðunarvali!
hmmm - Heittelskaður sýndi þessum áhuga mínum takmarkaðan áhuga en ég vil gjarnan frekari upplýsingar - hvar, hvenær, hvað kostar og klæðnaður? Get þá tekið upplýsta ákvörðun (flissar feimnislega) Mallinn hossast reyndar líka - er plús fyrir það?
Krumpa, þú færð póst. Og ég er sko viss um að heittelskaður fer ekki að kvarta undan því ef þú lætur verða af þessu, ég nánast lofa!
Já einmitt...sama hér....helv.barneignir (ummm....barnið 11 ára og 20 kíló komin síðan það fæddist...) helv barneignir!
Hlakka annars til póstsins en heimta kaffihúsaferð á eftir! - Hreyfi mig sko ekki fet (hvorki rass né annað) ef ég fæ enga gulrót....
Krumpa, það er frábær hugmynd!
Regína, þetta er fyrir allskonar maga! Þú færð póst með upplýsingum.
Hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til hlakka til
Og já, styð kaffihúsaferð eftir dillið <ljómar upp>
Ég kemst ekki í þetta sinn *brosir mæðulega og felur tár á hvarmi*
Ég verð upptekin við jólahlaðborðs-bossadillerý utanbæjar *dæsir*