Hvað á þetta að þýða? Er það ekki hlutverk laugarstarfsmanna að halda sundlaugum hreinum?
Skellti mér í sund áðan, sem væri ekki frásögu færandi nema að sundlaugin hafi verið að drukkna í laufum. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að það var mikill vindur og mikið af laufum fjúkandi til og frá, en á þessum tíma sem ég eyddi í lauginni sá ég ekki einn starfsmann gera sér ferð til að hreinsa burt laufblöð úr lauginni.
Þetta þykir mér ekki nógu gott og mæli með því að starfsmenn í sundlaugunum taki sér tak, þá sérstaklega ef þetta hvassviðri ætlar að staldra lengur við.
Þó ég hafi nú aldrei lent í þessu sama, þá get ég vel ímyndað mér að það sé pirrandi...það er ósanngjarnt að líkja þessi skrif við Omegaone piltar