— GESTAPÓ —
Númi
Ritstjórnarfulltrúi
Pistlingur - 1/11/05
Hananú!

Að gefnu tilefni:

Það er alger misskilningur að hér leyfist mönnum að skrifa hvað sem er um hvaðeina. Vilji menn viðra andfélagslegar, subbulegar, virðingarsnauðar og fordómafullar skoðanir sínar - þá er þeim vinsamlegast bent á að gera það annarsstaðar, t.d. uppi á hálendinu eða, sem væri betra, neðansjávar.

Þið hin eruð náttúrulega æði - sem endranær.

   (1 af 3)  
1/11/05 08:01

Skabbi skrumari

Orð í tíma töluð...

1/11/05 08:01

Aulinn

Hverju missti ég af?

1/11/05 08:01

Skabbi skrumari

Hugleiðingu um Islam... gæti ég trúað...

1/11/05 08:01

Offari

Ætli hann sé að skamma mig?

1/11/05 08:01

Aulinn

Af hverju missi ég alltaf af svona sjokkerandi ritum!

1/11/05 08:01

B. Ewing

Ég les allt á svo jákvæðum nótum að ég er að springa. Annaðhvort ég svona vitlaus eða svona ofboðsleg Pollýanna að ég ætti að íhuga að flétta á mig tíkó!

1/11/05 08:01

Barbapabbi

Takk númi, þú ert nú alveg ágætur líka. - skál!

1/11/05 08:01

Blástakkur

Ég tek eftir því að hinn mikli töffari Abu Hamza hefur horfið úr félagsritaröðinni. Farið hefur fé betra býst ég við.

1/11/05 08:01

Nermal

Ættli hann hafi ekki bara borðað eitraða hamsa..... En ég er nottlega alveg einstaklega mikið æði.

1/11/05 08:01

Finngálkn

Þetta er nú með innihaldsrýrara félagsriti sem skrifað hefur verið... Taktu þig nú taki Númi og reyndu að vera svolítið jákvæður og skrifaðu um eitthvað af viti.
Þinn einlægasti aðdáandi: Finngálkn.
P.s. Þó svo að menn séu góðir tónlistarmenn er ekki þar með sagt að þeir geti skrifað... Beint í punginn... Hvað þá verið skemmtilegir!

1/11/05 08:02

Númi

Hey - ekki rugga bátnum litli minn.

1/11/05 08:02

Finngálkn

Ha viltu sjá litla minn??? - Ok ég veit hvenær á að hætta... NOT!

1/11/05 08:02

Jóakim Aðalönd

Þú ert æði Númi. [Kyssir rasskinnina á Núma]

1/11/05 09:01

Skabbi skrumari

Þetta grunaði mig... hann er bara með eina rasskinn... hehe...

1/11/05 09:01

Hakuchi

Lengi lifi ritstjórn og frú Vigdís!

Húrra! Húrra! Húrra! Húrra!

[Hýðir þá sem ekki taka þátt í taumlausri múgsefjuninni]

1/11/05 09:01

Jóakim Aðalönd

[Tekur þátt í taumlausri múgsefjuninni]

1/11/05 09:01

Rasspabbi

[Fellur á kné og tilbiður ritstjórnina]

9/12/06 07:01

Hvæsi

Er þetta ekki bara hið fínasta laumupúkasvæði ?

9/12/06 08:00

krossgata

Eru ekki öll laumupúkasvæði fín?

3/12/07 09:00

krossgata

Ertu búinn að gleyma þessum líka?

3/12/07 10:01

Hvæsi

Nei, ég er búinn að fylgjast með þér á mörgum laumupúkasvæðum, án þess þó að leggja orð í belg.

9/12/07 15:02

Wayne Gretzky

Gott svæði.

Númi:
  • Fæðing hér: 27/6/03 09:40
  • Síðast á ferli: 30/6/17 21:08
  • Innlegg: 178
Fræðasvið:
Númi er fastráðinn hjá Baggalúti, og hefur verið um langt skeið. Hann er afskaplega vandaður maður og góður penni.