Útgáfubækur
Guðjón Stenmark

Hér segir frá æsilegum atburðum sem eiga sér stað eftir að sýningarstjóri finnst látinn á Kjarvalsstöðum fyrir framan myndina 'Þrjár rjúpur' eftir Kjarval.

Getur það verið tilviljun ein að sýningarstjórinn er einnig gjaldkeri Kiwanisklúbbsins Haðar? Hver er hinn dularfulli Ómar? Hvaða leyndardóma geyma verk meistara Kjarvals? Hver er hinn sanni boðskapur málverksins 'Rjúpa í hrauni'?

Áleitin og erótísk bók sem snertir alla sem hana lesa.

Leiðbeinandi verð: 19.700 NKR.
Brot:
19. kafli - lausnin

Frank var ekki af baki dottinn þótt myndagáta Kjarvals vefðist fyrir honum um stundarsakir. "Hvað ef ég legg spegil yfir helming myndarinnar og helli geymasýru yfir hinn helminginn?", sagði Frank og losaði bindið.

Stella brosti lostafullu brosi og hnyklaði brýnnar munúðarfullt. "Hvað áttu við Frank? Útskýrðu það fyrir mér, ég skil ekki hvert þú ert að fara".

Frank pírði augun. "Jú sjáðu til Stella, Kjarval beitti ýmsum brögðum til að leyna raunverulegum tilgangi sínum. Hann átti það til að mála myndir sínar á hvolfi, þannig að einungis væri hægt að sjá hvað hann málaði í raun og veru með því að bera spegil upp að myndfletinum. Hann málaði líka stundum með manganbættri akrílmálningu til að breiða yfir leynileg skilaboð - slík skilaboð verða aðeins afhjúpuð með geymasýru".

Frank makaði sýrunni á helming myndarinnar - um leið hvarf málningin og torkennilegt letur tók að birtast. Frank hallaði undir flatt... Gat það verið?

Hann þreif spegil af veggnum og bar hann upp að myndfletinum. "Guð minn almáttugur Stella - þetta er þá satt"!
"Hvað Frank? Hvað áttu við?" - Stella fann hvernig spennan kitlaði ungan, limafagran líkama hennar.

Frank stóð upp og strauk beina karlmannlega hökuna - "Stella, Paparnir - PAPARNIR!"
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Lesbók
Enter
 
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA