Erpur Eyvindarson
Einkennilegu bækurnar, eftir ungkommúnistann Erp Eyvindarson, eru fyrir löngu heimsþekktar og gefur Baggalútur nú út þriðja bindið.
Hér segir frá ævintýrum einræðisunglingsins Kim og æsispennandi baráttu hans við að halda þjóð sinni einangraðri frá umheiminum.
Athugið að fyrstu bækurnar, 'Lenín og einkennilegi kapítalistinn' og 'Kastró og einkennilegu vindlingarnir', eru nú fáanlegar í takmörkuðu upplagi hjá forlagi.
Leiðbeinandi verð: 65.900.-
Brot:
18. Selur kemur í heimsókn
"Jæja herra Blix, hér hefurðu svo eeeh... þeytivindurnar sem við höfum verið að smíða".
Um leið og Kim hóf upp raust sína tóku fuglar himins að syngja, sólin braust fram úr skýjunum og sætur ilmur fyllti vit sendinefndar Sameinuðu þjóðanna.
"Hmm, Nukeblaster 800e, það er einkennilegt nafn á þeytivindum Kim minn, en ef þú segir að þetta séu þeytivindur, nú þá hljóta þetta að vera þeytivindur", sagði Hans Blix dolfallinn yfir þeirri himnesku ró sem frá Kim stafaði.
Kim brosti og á sama tíma myndaðist undurfagur regnbogi við sjóndeildarhringinn.
"Já já, við erum með heila línu af heimilstækjum undir merkjum Nukeblaster. Og hérna herra Blix eru svo fáeinar rækjusamlokur og Góka Góla, endurnærandi svaladrykkur sem við höfum nýverið markaðssett erlendis með góðum árangri - endilega smakkaðu".