Baggalútur óskar landsmönnum gleðilegs sumars um leið og við færum ykkur sérstakan sumarfögnuð, lagið Gleðilegt sumar.

Það er hirðsveit Bagglúts, Thundervolt með erkitenórinn Tony Ztarblaster í fararbroddi, sem flytur lagið.

Upptökur, hljóðblöndun og eftirvinnslu annaðist Guðmundur Kristinn Jónsson.
Sérlegar þakkir fá Þráinn Árni Baldvinsson, Jón Geir Jóhannsson, Skúli Sigurðsson,
Karl Olgeir Olgeirsson og Sigurður Guðmundsson.

Veskú!
Texti:
GLEÐILEGT SUMAR

sumarið er komið á ný
úrkoma í grennd
og skyggni er nánast ekkert - alls ekkert

þjóðin kaupir blöðrur og ís
frostbitin börn
og skátar á hverju strái - helbláir

nú setjum við upp húfu og vettlinga
og fjölmennum með nefrennsli í skrúðgönguna
þó hvorki bóli
- á sumri né á sól
- þá fögnum við samt

í skítakulda á sumardaginn fyrsta
norðanátt - og grenjandi rigning
á sumardaginn fyrsta

ef það kemur örlítil sól
þá æðum við út - á sandölum
og stuttum pilsum - með öllu

hímum svo í kös niðrí bæ
með gaddfreðin glott - út að eyrum
gleðilegt sumar - aular

við hlýðum dofin á ræðurnar
og lúðrasveitin frosin föst við básúnurnar
þó hvorki bóli
- á sumri né á sól
- þá fögnum við samt

í skítakulda á sumardaginn fyrsta
norðanátt - og grenjandi rigning
á sumardaginn fyrsta
gleðilegt sumar - hlaupið í skjól
því lóan er flúin til Costa del sol

í skítakulda á sumardaginn fyrsta
norðanátt - og grenjandi rigning
á sumardaginn fyrsta
Myndir úr hljóðverinu:
Tony Ztarblaster fékk smá sjokk þegar hann uppgötvaði hvað lagið lá á djúpu raddsviði á köflum.
Bakraddasöngvararnir voru mjög fagmannlegir, þrátt fyrir mikla drykkju.
Það var stutt í grínið hjá slagverksleikurunum.
Gítarleikarinn, Thrainn, heimtaði að fá að taka sólóið uppi á Mýrdalsjökli - svo það yrði ekki 'korní'
Útvarpsstjóri var svo vinsamlegur að kíkja í hljóðverið og blessa verkið, enda áhugamaður um menningu og nýjungar í tækni og vísindum.