 |
| Nr. |
DÝR |
UMSÖGN DÓMNEFNDAR |
| 1 |
Hundur |
(sjá mynd) |
| 2 |
Köttur |
Tapaði óvænt fyrir hundinum í kotru |
| 3 |
Refur |
Kjaftaði sig upp í þriðja sætið |
| 4 |
Hrafn |
Áberandi skemmtilegur |
| 5 |
Fálki |
Mjög sjálfhverfur, en sanngjarn |
| 6 |
Kýr |
Þóttist bara vera heimsk |
| 7 |
Minkur |
Ólæs, en ákaflega músíkalskur |
| 8 |
Hagamús |
Sýndi mikla tilfinningagreind |
| 9 |
Rotta |
Vann vel undir álagi |
|

#1
Canis familiaris
Eldklár, áhugasamur og
umfram allt samviskusamur |
 |
| 10 |
Geitungur |
(sjá mynd) |
| 11 |
Haförn |
Leiðinlegur til lengdar, en óneitanlega klókur |
| 12 |
Smyrill |
Snjall en óvandaður |
| 13 |
Hámeri |
Gat pissað standandi |
| 14 |
Þorskur |
Býsna gott auga fyrir arkitektúr |
| 15 |
Hringanóri |
Gáfaðri en venjulegur selur, en ofboðslega væminn |
| 16 |
Geit |
Væri ofar hefði hún ekki reynt að svindla |
| 17 |
Háhyrningur |
Augljóslega ofmetinn; montinn og illgjarn |
| 18 |
Lómur |
Gat ekki sýnt sitt rétta andlit sökum eineltis |
| 19 |
Ýsa |
Átti erfitt með að fara með kveðskap eftir minni |
|

#10
Vespa vulgaris
Virkilega vel gefinn, skemmtilegur og
heiðarlegur |
 |
| 20 |
Flundra |
(sjá mynd) |
| 21 |
Búrhvalur |
Heiðarlegur og með gott viðskiptavit |
| 22 |
Hænsn |
Mjög áhugasöm og snögg að tileinka sér
nýja tækni |
| 23 |
Lúða |
Sýndi sorgarviðbrögð |
| 24 |
Álft |
Átti í miklum erfiðleikum með að halda
augnsambandi |
| 25 |
Skúmur |
Grunsamlegur - mjög grunsamlegur |
| 26 |
Spói |
Klár, en ósamkvæmur sjálfum sér |
| 27 |
Bleikja |
Full trúgjörn |
| 28 |
Rykmaur |
Kom á óvart með yfirgripsmikilli þekkingu
á efnafræði |
| 29 |
Tindabykkja |
Þekkti litina |
|

#20
Pleuronectes flesus
Feimin, en með sterka nærveru
og mikla skipulagshæfileika |
 |
| 30 |
Brandugla |
(sjá mynd) |
| 31 |
Sléttbakur |
Reyndi ítrekað að hafa mök við spyrilinn |
| 32 |
Húsamús |
Óvitlaus en vantaði alla þolinmæði |
| 33 |
Hníðir |
Lagði lóminn í einelti |
| 34 |
Rostungur |
Afar meðvitaður um almennt hreinlæti |
| 35 |
Svín |
Kommúnisti |
| 36 |
Þykkvalúra |
Dónaleg |
| 37 |
Geirnyt |
Mjög skapvond |
| 38 |
Bjartmáfur |
Hélt að hann væri Skúmur |
| 39 |
Skrofa |
Alltaf í góðum fíling |
|

#30
Asio flemmeus
Dálítið hranaleg en
með ríka réttlætiskennd |
 |
| 40 |
Mjaldur |
(sjá mynd) |
| 41 |
Starri |
Gat ekki setið kyrr |
| 42 |
Makríll |
Lærði að lesa á klukku, en lagðist á afkvæmi rostungsins |
| 43 |
Álka |
Áhugalítil og ófélagslynd |
| 44 |
Steypireyður |
Gat lagt saman prímtölur, en át afkvæmi sín í kjölfarið |
| 45 |
Útselur |
Kunni að telja upp að fjórum |
| 46 |
Landselur |
Kunni að telja upp að fjórum á dönsku |
| 47 |
Beinhákarl |
Horfði á sjónvarp, en virtist ekki fá mikið út úr því |
| 48 |
Hestur |
Gersamlega óþolandi |
| 49 |
Síld |
Mikil félagsvera |
|

#40
Delphinapterus leucas
Gæti náð árangri
sem landdýr |
 |
| 50 |
Sæbjúga |
(sjá mynd) |
| 51 |
Brekkusnigill |
Samkynhneigður |
| 52 |
Hrossafluga |
Kom skemmtilega á óvart í óhlutbundinni hugsun |
| 53 |
Hornsíli |
Ætti skilið að vera enn neðar í fæðukeðjunni |
| 54 |
Sauðkind |
Því miður, því miður |
| 55 |
Ígulker |
Sýndi litla svörun, en ótvíræða reiknihæfileika |
| 56 |
Haftyrðill |
Skuldaði meðlög út um allan bæ |
| 57 |
Langreyður |
Afar næm á stærðfræði og mikill sælkeri |
| 58 |
Nykur |
Eina þjóðsagnaveran sem var mæld. Hress en
mjög treg |
| 59 |
Íslenskur fjárhundur |
Mestu vonbrigðin, þó gáfaðri en meðalbóndi |
|

#50
Holothuria forskali
Mjög gott rúmskyn og þróað
brageyra |
 |
| 60 |
Túnfiskur |
(sjá mynd) |
| 61 |
Húsfluga |
Stóð sig vel miðað við skordýr |
| 62 |
Krossfiskur |
Gaf merki um eftirsjá |
| 63 |
Lýsingur |
Illa lesinn |
| 64 |
Snigill |
Tækifærissinni |
| 65 |
Lax |
Hrifinn af fallegum litum |
| 66 |
Hreindýr |
Brosmild |
| 67 |
Brandönd |
Mjög ofbeldishneigð |
| 68 |
Óðinshani |
Nútímalega þenkjandi en eilítið einþykkur |
| 69 |
Kjói |
Hafði sjúklegan áhuga á eigin hægðum |
|

#60
Thunnus thynnus
Óvitlaus og afar ljúffengur |
 |
| 70 |
Blárefur |
(sjá mynd) |
| 71 |
Sendlingur |
Tvímælalaust einlægasta dýrið |
| 72 |
Sanderla |
Úrræðagóð þrátt fyrir takmarkaðar
gáfur |
| 73 |
Flórgoði |
Vandvirkur |
| 74 |
Naut |
Gáfulegur - en, jú ... nautheimskur |
| 75 |
Urriði |
Ágætur lygari |
| 76 |
Murta |
Hafði háþróaða samskiptatækni,
en gat ekki notað hana |
| 77 |
Marfló |
Kom á óvart, afar fundvís |
| 78 |
Rjúpa |
Ákaflega taugaveikluð og keðjureykti |
| 79 |
Dverghumar |
Lærði að dansa línudans, en át afkvæmi sín í kjölfarið |
|

#70
Canis lagopus
Sýndi litla svörun, hugsanlega
útlendingur |
 |
| 80 |
Býþjór |
(sjá mynd) |
| 81 |
Silfurskotta |
Áhugasöm |
| 82 |
Skógarþröstur |
Skilningsríkur, en mjög takmarkaður |
| 83 |
Áll |
Vinsælasta stúlkan |
| 84 |
Rækja |
Þekkti afkvæmi mjaldursins, en át sín eigin |
| 85 |
Hringönd |
Full af komplexum gagnvart flórgoðanum |
| 86 |
Stuttnefja |
Óþægilega laglaus |
| 87 |
Kúskel |
Ekki mikið í gangi hjá henni |
| 88 |
Dordingull |
Meðvitaður um eigin takmörk |
| 89 |
Höfuðlús |
Stamaði |
|

#80
Pernis apivorus
Metnaðarfullur, en lesblindur |
 |
| 90 |
Sefgoði |
(sjá mynd) |
| 91 |
Hringormur |
Sýndi ekki svörun nema hann væri titlaður
'doktor' |
| 92 |
Hunangsfluga |
Með ríka kímnigáfu |
| 93 |
Fýll |
Mjög veikur fyrir harmonikkutónlist |
| 94 |
Hettumáfur |
Sjálfumglaður og barnalegur |
| 95 |
Fíll |
Mætti í vitlausa könnun |
| 96 |
Trjónukrabbi |
Þekkti maka sinn, en át hann |
| 97 |
Dvergsvanur |
Ekkert sjálfstraust |
| 98 |
Kúhegri |
Gleymdi ítrekað hvernig á að fljúga |
| 99 |
Ánamaðkur |
Sýndi merki um forvitni |
|

#90
Podiceps griseigena
Þekkti illa eigin afkvæmi,
en át þau ekki
|
 |
| 100 |
Beitukóngur |
(sjá mynd) |
| 101 |
Lundi |
Skelfilega heimskur, þrátt fyrir fallegt nef |
| 102 |
Gaddþvari |
Í tómu rugli, alltaf |
| 103 |
Sullur |
Ósköp lítið um að vera |
| 104 |
Armslanga |
Reyndi að éta sjálfa sig |
| 105 |
Hrúðurkarl |
Ekkert í gangi, EKKERT! |
|

#100
Buccinum undatum
Engin viðbrögð, nema helst við raflosti |