Til leigu
Tilraunastofa í efra Breiðholti, hentar vel fyrir tilraunir með smærri kjarnavopn. Afgreiðsla vísar á.
Flutningar
Er fluttur úr risherbergi við Krummahóla í huggulega kjallaraíbúð í Hraunbæ. Næg bílastæði.
Tóti
Tapað fundið
Hvítt og móbrúnt lamadýr týndist einhversstaðar milli Hveragerðis og Eyrarbakka um helgina. Svarar nafninu Hermann. Fundarlaun. Skilvís finnandi hafi samband við afgreiðslu Baggalúts.
Aðgerðapakkar!
Frábær þorratilboð á eintaklingsaðgerðapökkum, fjölskylduaðgerðapökkum, fyrirtækjaaðgerðapökkum, sveitarfélagaaðgerðapökkum og alþjoðaefnahagsaðgerðapökkum!
IMF
Sá eða sú
sem á eftir að skila kvikmyndinni The Gate á Vídeóleigu Valgerðar frá því 12. júní 1988 er vinsamlegast beðin(n) að gera það hið snarasta að viðlögðum sektum.
„Amma“ óskast
í skiptum fyrir vel með farinn móðurbróður. Á sama stað fást ljúffengir nýgotnir blendingshvolpar. Getum úrbeinað fyrir þá sem vilja.
a.v.á.