Reikistjarna
lítiđ notuđ reikistjarna ásamt ţremur tunglum fćst fyrir lítiđ, hentar vel fyrir lítil súrefnisháđ lífríki. Frábćr stađsetning í fallegu sólkerfi. Skipti á minni plánetu koma til greina.
Nýjung á Íslandi
Tek ađ mér ađ svíkja aleiguna út úr grunlausu fólki. Áratuga reynsla!
Áhugasamir sendi svör sín til afgreiđslu Baggalúts, merkt ÓBÓ-3112.
Robbi!
Ţú ert bara andfúll asni.
Bára
Grikkir athugiđ
eigum á lager ýmsar stćrđir af trójuhestum. Tveggja til 26 manna. Ýmsir litir , m.a. bláir, gulir og bleiksanserađir.
Ellingsen
Dreki.
Nývanađur, 3ja alda dreki fćst gefins á gott heimili. Gegnir nafninu Filipus. A.v.á.
S.O.S
Er tilbúinn til ađ greiđa vel fyrir afnot af vatnssalerni, einu sinni í viku. Valdi spíri.