Skrípó
Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Enter – 13/5/13
 
Lesbók
Þjóðbók
Smælki

ÞINGMENN!

vorum að fá nýja sendingu af jogginggöllum og hlýrabolum. Verið þægilega klæddir í þinginu.
Verzlun Ingvars.

Kassavanur

balroggsungi fæst gefins á gott heimili. A.v.á.

Skemmtibátur

fæst í skiptum fyrir lystisnekkju. A.v.á.

Til sölu

Fullkominn búnaður til langra ferðalaga um útgeim. Talsvert notaður. A.v.á.

Hasshaus

Miðaldra hasshaus með doktorspróf í alþjóðalögfræði óskar eftir rólegri skrifstofuvinnu. Get hafið störf nú þegar.

Auglýsing!

Tapast hefir rauður hestur, 5 vetra gamall, vakur og töltgengur með marki: sneitt af h., fjöður fr. v. Þeir sem kynnu að verða varir við þennan hest, eru vinsamlegast beðnir að tilkynna það undirrituðum hið allra fyrsta.

Hemmi.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA