Skrípó
Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Lesbók
Enter
 
Þjóðbók
Smælki

Glæfrar

Tek að mér glæfrar við ýmis tækifæri.

Glanni Glæfur.

Greiðendur fasteignagjalda!

Munið að þótt þið eigið í raun minna en ekkert í húsunum ykkar og bankinn gæti hirt þau af ykkur hvenær sem er, þá verðið þið samt sem áður að borga fasteignagjöldin. Svona erum við ógeðslega sniðug!
Sveitarfélögin

Klæðskiptingar

Munið skiptimarkaðinn í Kolaportinu.

Textar

Allir textar Bjartmars Guðlaugssonar, handskrifaðir, fást gegn vægu gjaldi. Á sama stað fást einnig grip við öll lög Harðar Torfasonar, véltiruð. Avá.

Tenór óskast strax

í meðalstórt hugbúnaðarfyrirtæki góð Excelkunnátta nauðsynleg.
A.v.á.

Veiðimenn ath.:

Af gefnu tilefni er varað er við mökum við hverskyns gæs-, and- og mávfugla. Sóttvarnarlæknir

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA