Skrípó
Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Lesbók
Þjóðbók
Smælki

Til sölu

Vel með farinn fimmþúsundkall. Aðeins beyglaður efst í vinstra horni. Tilboð óskast.

Nornaveiðimenn athugið

Nornaveiðileyfin fást hjá okkur. Einnig nornablístrur, -gildrur og -bálkestir í miklu úrvaldi.

Galdrabrennsla Gunnars.

Einkamál

Eldri, atvinnulaus, einstæð, drykkfelld kona í Grindavík óskar eftir að kynnast sjúklega myndarlegum karlmanni á fertugsaldri sem veit ekki aura sinna tal - með náinn vinskap (kynlíf o.fl.) í huga.
A.v.á.

Til láns

Gömul pláneta. Hentar vel fyrir mjög þróaðar lífverur. Þarfnast smá lagfæringa eftir fyrri íbúa. Laus eftir um 500 ár.
Guð.

Atvinna óskast

Miðaldra maður óskar eftir atvinnu við afgreiðslustörf, ljónatamningar eða innheimtu. A.v.á.

Þjóðarbú

Vorum að fá í einkasölu, fallegt þjóðarbú. Á besta stað, miðsvæðis á Atlantshafi. Búið þarfnast töluverðs viðhalds og fæst gegn yfirtöku skulda. Eigna- og hárþvottamiðstöð Snúlla og Dúlla.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA