Skrípó
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Enter – 17.02.20
 
Lesbók
Enter
 
Þjóðbók
Smælki

Vantar þig heimilistæki?

Erum að taka við pöntnum fyrir innflutning ársins 2015. Umsóknareyðublöð í þríriti fást afhennt gegn skriflegri beiðni (með hefðbundnum 3 mánaða fyrirvara).

Neyslu- og innflutningsstýringarráð ríkisins

Athugið.

Hafnfirðingar sem hafa rafljós, eru vinsamlegast beðnir, vegna ljóslækninga, að slökkva á ljósunum kl. 10 á morgnana.

Þófabrekán

Eigum fyrirliggjandi fáein úrvals þófabrekán. Ýmsir litir. Ýmsar stærðir.

Brekánbúðin.

Talibanar

munið bingóið í kvöld. Maggi verður með nikkuna. Nefndin.

Til sölu

Vinsælt enskt knattspyrnulið í góðum rekstri. Einnig á sama stað tónlistarhús, óklárað.
Afgreiðsla vísar á

Stúlka

óskast nú þegar til að annast um heimsþekkt, franskt karlmódel í vikutíma. Frönskukunnátta ekki nauðsyn. A.v.á.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA