Tapað fundið
Hvítt og móbrúnt lamadýr týndist einhversstaðar milli Hveragerðis og Eyrarbakka um helgina. Svarar nafninu Hermann. Fundarlaun. Skilvís finnandi hafi samband við afgreiðslu Baggalúts.
Gefins prentari
Vandaður prentari fæst gefins. Reykir ekki. A.v.á.
Gefins
Ofsalega sætur, kassavaninn Tamíla-Tígur. A.v.á.
Lengi á leiðinni?
Ertu þreyttur á endalausum umferðarhnútum og töfum? Vorum að fá skemmtileg ormagöng, 78% stöðug, í ýmsum litum. Kynntu þér málið. Hið mikla samband ehf.
Til sölu
Lítið notað sveitarfélag á Langanesi. Áhugasamir hafi samband við afgreiðslu.
Foreldrar: Eyðið tíma með börnum ykkar
Mótmælaaðgerðir eru kjörið tækifæri til samveru barna og foreldra. Ráðumst saman á lögguófétin og björgum þannig börnunum frá drykkju og slæmum félagsskap.
Lýðveldisheilsustöð