Skrípó
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Enter – 17.02.20
 
Lesbók
Enter
 
Þjóðbók
Smælki

Gefins

Kassavanur dvergur. Á sama stað er til sölu casio tölvuúr (ódýrt).
A.v.á.

Jólin byrja í IKEA

Nú eru aðeins sjö mánuðir til jóla!
IKEA

Tapað

tvö karton af auðguðu úrani töpuðust fyrir utan skemmtistaðinn Óliver aðfararnótt laugardags. Finnandi er vinsamlegast beðinn að snúa sér til íranska konsúlsins á Íslandi.

Tek að mér að skemmta í barnaafmælum, grillveislum og erfisdrykkjum. Hef meðferðis eigin kareókí græjur af fullkominni gerð. Sanngjörn þóknun.
Megas.

Tilkynning frá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

Í anda þess þegar Bandaríkjastjórn breytti nafni franskra kartaflna í "Frelsiskartöflur" hefur nú verið ákveðið að enskur morgunverður skuli héðan í frá heita "Skítalabbatjallaógeðiskornflex"

„Amma“ óskast

í skiptum fyrir vel með farinn móðurbróður. Á sama stað fást ljúffengir nýgotnir blendingshvolpar. Getum úrbeinað fyrir þá sem vilja.
a.v.á.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA