Skrípó
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Enter – 17.02.20
 
Lesbók
Enter
 
Þjóðbók
Smælki

Skipti

NKOTB safnið +a vínyl fæst í skiptum fyrir vel með farnar Slayer plötur og/eða snældur. Afgreiðsla vísar á.

Hringborð

fæst gefins. Vel með farið en nokkuð plássfrekt. Hentar vel stóru og meðalstórum hópum riddara.

Starfskraftur óskast

Vanur viðskipta- eða hagfræðingur óskast til að hafa yfirumsjón með endurskipulagningu lítils hagkerfis. Þarf að hafa hreina sakaskrá og vera læs og talandi á ensku og eitt norðurlandamál. Um tímabundna ráðningu er að ræða.
Viðskiptaráðuneytið

Gylta!

Já Málfríður, þú ert gylta. Reynir.

Baddi

takk fyrir að lúlla hjá mér á aðfangadag. Simmi.

Aðgerðapakkar!

Frábær þorratilboð á eintaklingsaðgerðapökkum, fjölskylduaðgerðapökkum, fyrirtækjaaðgerðapökkum, sveitarfélagaaðgerðapökkum og alþjoðaefnahagsaðgerðapökkum!
IMF

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA