

Ég þoli ekki allar þessar déskotans bankaauglýsingar sínkt og heilagt. Þoli þær ekki.
Allar eru þær frámunalega langar - og allar innihalda þær endalaus, flórsykurhúðuð myndskeið af misviðurstyggilega brosmildu fólki, sem ýmist er að skeina börnunum sínum eða dást að uppstilltum og raðgreiddum eigum sínum - við gerilsneyddan undirleik einhverra froðupyppilda.
Ofan á allan hroðann bætist svo lúshægur og slepjulegur upplestur innihaldsfrírra og merkingarskertra gífuryrða úr samheitaorðabók Menningarsjóðs.
Ullabjakk, gæti einhver sagt.
Svo er þetta sýnt linnulaust - á öllum stöðvum, öllum stundum. Manni er hvergi undankomu auðið frá gargandi tómahljóðinu, stílfærðri auðninni.
Óþolandi, gersamlega.
Ef þessir bankabesefar þurfa endilega að kasta peningum á glæ mættu þeir gjarnan gera það svo vammlausir viðskiptamenn þeirra sjái ekki til.
---
Og svona fyrst maður er að eyða orðum á þessa uppþembdu peningatanka. Hvað er eiginlega með þennan Íslandsbankaumskipting, Glitni? Er mönnum fyllilega sjálfrátt þegar þeir slá upp andlitsmynd af manni með blæðandi ör og heftiplástur á enninu á heimasíðu stöndugrar fjármálastofnunar?

Spikuðu landeyður finniði fjandann
og fáið að skríðí hans kör.
Takið svo andskotans efnahagsvandann
og etið með hlandsýrðri mör.
Ég vil bara taka það fram í eitt skipti fyrir öll að ég myndi aldrei fara að grenja yfir þessu fokkings Icesavemáli. Þannig að þetta afdalaafturhaldshyski sem sjoppaði mig og klíndi fugldrituðu smettinu á mér í öll dagblöð um daginn getur bara tekið þessar heilsíður sínar og troðið rakleitt upp um langspilið á sér.
Ég hef raunar aldrei grátið nema í þetta eina skipti þegar hún Imba mín setti smjörsýruna í grjónagrautinn.


Hvurn fjárann eru þessar samninganefndir sveitarfélaga og kennara eiginlega að spá? Heldur þetta fólk að verkfallið leysi sig sjálft? Skv. nýjustu fréttum er ekkert að gerast á fundunum, engin hreyfing, engar nýjar tillögur. Hvað í ósköpunum er blessað fólkið að gera á þessum fundum? Spila kana? Fara í sannleikann eða kontor? - „Jæja Birgir Björn, þú segir kontor.... þú átt að.... kyssa fulltrúa kennarasambandsins í undanþágunefnd“ - „nei oj!“
Sjálfsagt sitja nefndarmenn bara og lepja kaffi kringum samningaborðið og bjóða hver öðrum pokasveittar kleinur og samlokur - nema Ásmundur Atkinsson, hann er alltaf með beikon og þeyttan rjóma í nesti.
Er ekki kominn tími til að kalla til svokallaðan utanaðkomandi aðila (annan en Atkinsson), einhvern svona nútíma Þorgeir Ljósvetningagoða. Kannski Ragnar Aðalsteinsson? Vigdísi Finnbogadóttur? Dorrit?
Hey ég veit hver myndi leysa kennaradeiluna svo allir væru ánægðir: Sveppi! Hann myndi mæta á samningafund með ógeðsdrykk á brúsa og vera búinn að semja fyrir hádegi. Ég skora því hér með á deilendur að setja sig í samband við lukkutröllið með lambakrullurnar og boða á sinn fund hið snarasta. Ég held örugglega að hann sé með gsm síma.


daunilli, duglitli
diskódvergur
lævís, lágvær, smeykur
léttvægur og væminn
blauður, úldinn, bleikur
bágborinn og klæminn
farðu í fúlan!
- þú fábrotni andsvítans mergur
þú dálitli, dáðlausi
diskódvergur

Klæðskiptingar
Munið skiptimarkaðinn í Kolaportinu.
Greiðendur afnotagjalda RÚV
ekki missa af táknmálsfréttum. Nýjar þulur. Ný tákn.
Ríkisútvarpið – Sjónvarp
Til sölu
lítið notað mannorð. Nokkuð flekkað - þarfnast viðgerðar og hreinsunar.
A.v.á.
Togarasjómenn athugið!
Dönsku blússurnar komnar. Margar stærðir.
Vélasala Einars.