Jæja, mikið er nú gott að vera kominn aftur. Drullusokkurinn Hafþór komst undan í þetta skiptið en Baggalútssamsteypan hefur ráðið erlenda sérfræðinga til að rannsaka viðurstyggilega árás svíðingsins á ritstjórn og starfsemi Baggalúts og er að vænta skýrslu frá þeim von bráðar.
Sannleikurinn lifir sumsé góðu lífi og við hlökkum allir til að takast á við þau öfl sem raunverulega ráða í þessu samfélagi og troða þessa þjóð niður í svaðið.