Lesbók04.10.02 — Enter

Þá erum við allir mættir hingað til Kaktuzar. Myglar, sem hafði boðið okkur heim var vitanlega svo sauðdrukkinn þegar við mættum til hans að það var ekki viðlit að staldra við heima hjá honum. Allt á rú og stú, dvergur í fataskápnum og ræstingakonan rænulaus á eldhúsgólfinu. Myglar sjálfur lá nakinn í rúminu með risavaxinn kúrekahatt á höfðinu og þuldi rímur milli þess sem hann gelti á okkur.

Við klæddum hann í snatri og drösluðum honum heim til Kaktuzar. Þar sitjum við nú og spilum kotru. Spesi er orðinn svo frávita af drykkju að hann situr á gólfinu og reynir að spá fyrir heimilsköttunum þremur. Númi baular eitthvað upp úr 'Viðnýal' doktors Helga Pjeturs og krefst þess að við förum upp á öskjuhlíð og gröfum grunn að stjörnusambandsstöð. Myglar sefur vært í vaskinum og Kaktuz sjálfur stendur úti á svölum og starir einbeittur á gamla aspartréð, sem presturinn hengdi sig í hér um árið.

Sjálfur er ég afar kátur og er búin að snúa öllum speglum í húsinu. Svo samdi ég ljóð:

Billjarður!
og kartan skekur höfuð
næturfé á blístri!
hastur er hann, já!
og safi sardínunnar lekur millum læra
máfkonunnar
dýrindis ís
í herbergi villiberjanna
pósturinn er villur
afar
og huggur á viðreisn ærunnar

rasp

Kæru lesendur. Hringið á leigubíl.

 
Kaktuz — Sálmur
 
Enter — Saga
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Kaktuz — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Myglar — Sálmur
 
Kaktuz — Saga
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
        1, 2, 3 ... 178, 179, 180, 181, 182