Þá hef ég loks lokið við að þýða stóru marglyttubókina. Stórmerkilegar skepnur - og ljóngáfaðar. Nú er bara að huga að jólaútgáfunni. Það eru fjölmörg handrit sem bíða birtingar. Ritgerðin hans Núma um fjölæra túnfífla, 'litla apakverið' eftir Kaktuz og svo náttúrulega 'Loftskipið Þrándur', örljóðabók sem ég hef lengi átt, en alltaf þótt leiðinleg.
Hmmm, hvað ætli Myglar vilji með þetta loftnet hér inni.