Lesbók09.08.02 — Enter

Í gær ók ég Reykjanesbrautina. Hvílík helför. Fyrir það fyrsta fengi útsýn frá veginum bæði Magnús Scheving og Valgerði Matthíasdóttur til að leggjast þunglynd í sama bælið. Hvað er með þetta hraun? Nægilegt væri að hafa nokkra mola og mylsnu til sýnis á Borgarbókasafni fyrir túrista, hitt er sorglegt bruðl, því þetta svæði myndi nýtast bærilega fyrir bílastæði, badmintonmiðstöð, sem sárlega vantar - nú eða langþráða stjörnusambandsstöð. Nóg um það.

Annað fór fyrir brjóst mér - og nærri yfir það. Um þennan helveg aka móðursjúkir blábjánar. Ríflega tólf einkabifreiðar, átta vélhjól, gengi fólksflutningabifreiða og grænleitur svifnökkvi reyndu að myrða mig þarna. Réttast væri að kaghýða og handhöggva bessa bévítans taugaveiku ökufanta alla saman og stjaksetja á fjölförnum stað, en afviknum.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Dagbók
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, 4 ... 180, 181, 182