Enn gera erkifjendur Baggalúts atlögu að starfsemi okkar. Það lítur út fyrir að herra Hubner sé kominn með samstarfsmenn, enda árásin óvenju svívirðileg. Öll starfsemi lá niðri frá klukkan eitt í nótt og þangað til fyrir stuttu síðan. Mig grunar jafnvel að einhver innan Baggalúts gæti verið í vitorði með skemmdarvarginum. Það var nefnilega allt með felldu þegar ég fór héðan seint í gærkvöld. Enter var þá sá eini eftir; þóttist vera að vinna eins og venjulega. Hann kom með alls kyns afsakanir fyrir að vera lengur, það væri svo mikið að gera, en mig grunar ýmislegt...