Lesbók02.11.02 — Númi Fannsker

Þegar forseti Bandaríkjanna kom í orlofsferð til Reykjavíkur var óvenju heitt. Sólins skein og í fyrsta skipti í manna minnum mátti spæla egg á nýlögðu malbiki Ártúnsbrekkunnar. "It's hotter than hell here", sagði forseti Bandaríkjanna þegar hann steig út úr bílaleigubíl af gerðinni Nissan Micra og strauk af sér svitann með rauðum tóbaksklút. Hann var á tvískiptum jakkafötum, bláum með rautt bindi og í hvítrí skyrtu. Hann var vatnsgreiddur og óaðfinnanlega rakaður (reyndar hefur bandaríska þjóðin ekki átt skeggjaðan forseta í háa herrans tíð). Í fylgd með forsetanum voru tveir lífverðir sem sífellt héldu vísifingri hægri handar að hægra eyra sér og hvísluðu stundum illskiljanlegan þvætting í úrið sitt. Þvætting eins og "Red fox is on the move" - eða "Release black hamster". Einnig var í för með forsetanum greifinn af Zósíótópíu, grannleitur maður á sextugsaldri. Gráskeggjaður og beinnefjaður - djúpt hyggjandi til augnanna. Hann var klæddur skarlatsmussu gullbróderaðri og stuttum buxum - af þeirri gerð sem oft eru kenndar við Bermúdaeyjar. Hann virtist í góðu skapi, eins og reyndar forseti Bandaríkjanna - þrátt fyrir hitann.

Þegar forseti Bandaríkjanna hafði skráð sig inn á hótel Loftleiðir, tekið upp úr ferðatösku sinni, brugðið sér undir ískalda sturtu og klætt sig í hentugri föt (rauðar stuttbuxur og skyrtu í bandarísku fánalitunum) gekk hann ásamt greifanum af Zósíótópíu í átt að Reykjavíkurtjörn. Hann hafði heyrt getið um notalegan veitingastað á þessum slóðum og varð því feginn er hann kom auga á veitingasölu Umferðarmiðstöðvarinnar. Forseti Bandaríkjanna og Greifinn af Zósíótópíu afréðu að panta sér ostborgara í veitingasölunni og halda svo áfram að Reykjavíkurtjörn - þar sem allar endurnar eru.

"Two double cheesburgers please", sagði forsetiBandaríkjanna við horaðan afgreiðslumann með gula derhúfu og svarta svuntu - "oh and fries". "Æm sorrí bött ví ónlí hev slátur túdei, end pínk mítbols in kabbitsjrappings", sagði horaði afgreiðslumaðurinn og benti á matseðilinn - "bött makkdónalds is dántán júnó".

Þegar forseti Bandaríkjanna hafði sporðrennt þremur tvöföldum ostborgurum á Macdonald's og þambað einnoghálfan lítra af kókakóla, sagði hann brosandi rómi við greifann af Zósíótópíu: "I love this town - we should come here more often".

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182