Lesbók30.01.02 — Enter

Á göngu minni yfir Njarðargötuna í hádeginu varð mér starsýnt á konu sem stóð álengdar og var að bisa við að fiska áldós af Sprite-gerð upp úr rusladalli.

Ég gekk til hennar og spurði hvað hún vildi með dósina, en fékk ekkert svar - aðeins illyrmislegt augnaráð.

Mér er spurn; hvað getur kona á besta aldri viljað með slíka dós að gera? - er þetta sjúkleg söfnunarárátta, eða hrein geðbilun?

Eða liggur annað og meira hér að baki? Liggja e.t.v. verðmæti í slíkum umbúðum sem við vitum ekki af? Ég óttast svarið en er kannske leynileg uppbygging stjörnusambandsstöðvar nú þegar hafin - með hjálp mannsins á götunni???

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Dagbók
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, 4 ... 180, 181, 182