Dagbók – Númi Fannsker
Númi Fannsker

Oft hefir mér blöskrađ andfélagsleg hegđan míns gamla vinar Enters, en aldrei sem nú! Jú hann hefir lagst í sumbl og látiđ undan girndum holdsins, vissulega; hann hefir ráđist á blásaklaust fólk sem ekki hefir nokkra burđi til ađ verjast hrokkagikkjum sem honum og nú...nú hatast hann viđ íslenska landsliđiđ í handbolta! Ég man ţá tíđ er sá hinn sami Enter átti sér ţann draum stćrstan ađ leika fyrir umrćtt liđ, ţá undir stjórn Bogdans Kovalshics hins pólska. Ţetta veit ég vegna ţess ađ ég fylgdi honum á fund Bogdans sem lagđi fyrir hann margvíslegar inntökuţrautir og próf. Ađ ţeim loknum kvađ hann upp ţann dóm sinn ađ Enter ćtti ađ einbeita sér frekar ađ briddsspili (sem ég hefi margsinnis reynt ađ fá hann til ađ stunda međ mér) en allt kom fyrir ekki. Enter fór ađ skćla ţar og ţá og skrifađi harđorđ bréf í dagblöđ. Greinar eins og: "Íţrótt djöfulsins", "Fjandmađur fólksins - hinn pólski", "Handbolti sökkar!" og fleiri. Satt ađ segja hélt ég hann hefđi sćst viđ ţessa gömlu drauga en NEI, enn á ný ţarf hann ađ draga ţessa fallegu íţrótt, kostulegu skemmtan; ţessa menningarperlu, niđur í svađiđ og í ţetta sinn í pistli, hér á sjálfum vef Baggalúts! Er ekkert heilagt í skýjuđum augum Enters? Er hann virkilega svona mikiđ og barnalegt svín ađ hann ráđist međ níđi á hetjur Íslands? Sanna víkinga hinnar íslensku ţjóđar sem vissulega má muna fífil sinn fegurri.

Lesbók frá fyrri tíđ

Af hverju ţarf samkeppni alltaf ađ snúast upp í ţađ ađ apa eftir öđrum?

Af hverju ţarf pefsí ađ vera međ kókbragđi? Mónuegg međ nóabragđi? Tannkrem međ ... tannkremsbragđi?

Af hverju ţarf hver einasta andskotans saltstöng ađ bragđast nákvćmlega eins? - og er einhver lögbođin alheimsforskrift ađ útliti sígarettna?

Stundum held ég svei mér ţá ađ ţađ sé bara einn treggáfađur sjimpansapi sem framleiđir tónlistamyndbönd, spjallţćtti, auglýsingar og fréttir ţessa heims.

Ţetta er ekki mönnum bjóđandi!

Af hverju getur olís ekki veriđ međ grćnt bensín, esso blátt og skeljungur skćrrautt?

Af hverju ţarf alltaf allt ađ vera eins?

EINS OG HVAĐ?!

Spesi – Dagbók
 
Dr. Herbert – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Dr. Herbert – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Kaktuz – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Kaktuz – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
        1, 2, 3 ... , 45, 46, 47  
Ţjóđbók
Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA