Lesbók12.09.06 — Enter

Ég er mikill áhugamaður um sögu og mótun Ameríku, bæði suður- sem norðurhluta - en þó einkanlega miðbiksins. Því kættist ég mjög þegar ég á ráfi um ónefnda mynddiskaleigu rak augun í kvikmyndina Glæpynjur (e. Banditas). Þar fara hinar karamelhúðuðu stöllur Salma Hayek og Penélope Cruz með burðarhlutverk - ásamt þeim pasturslitla hliðarlínuleikara Steve Zahn.

Ekki spillti fyrir að köntrístjarnan skjálgeygða Dwight Yoakam túlkar skúrkinn.

Á umslagi var myndinni lýst fjálglega sem baráttusögu úr viðkvæmu Mexíkó 19. aldar þar sem þjóðfélagið allt er sem suðupottur og lék mér skiljanlega forvitni á að sjá hvaða áhrif ítrekuð bankarán hefðu á svo viðkvæmt hagkerfi.

Ég leigði því myndina.

Skemmst er þó frá að segja að lítið sem ekkert var á henni að græða í sögulegu tilliti, hvað þá hagfræðilegu. Söguþráður var ofinn af vanefnum, gamansemin mislukkuð og hasar stillt mjög í hóf.

Megináhersla var hins vegar lögð á fagurskapaða mjólkurkirtla hetjanna sem var slengt fram hvenær sem tækifæri gafst . Er því óhætt að mæla með myndinni fyrir brjóstmylkinga og aðra áhugamenn um kísilstyrkta barma.

Rétt er því að miða stjörnugjöf við ofangreind efnistök og fær Salma stjörnurnar tvær fyrir sín brjóst sem eru óneitanlega afar tilkomumikil - en túttur Penélópu voru svo sem ekkert til að hrópa húrra fyrir - hvað þá prýða stjörnum.

 
Kaktuz — Saga
 
Kaktuz — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 180, 181, 182