
Skyndilega er óbyggilega rokrassgatið Viðey orðið hvers manns hugljúfi. Skrumslefandi borgarstarfsmenn keppast um að lofa hugmyndir um að flytja hitt og þetta hafurtask út á þetta yfirgefna sker sem enginn ann og enginn vill af vita.
Nýstárlegum gleðigandi Yokar Ono var nýverið fundinn þar staður fjarri mannabyggðum - og nú ræða menn það fjálglega að flytja þangað forseta lýðveldisins ásamt föruneyti. Mun það, að mér skilst, gert til að rýma fyrir nýrri aumingjagóðri sefjunarflugbraut á Arnarnesi, ætlaðri lötu landsbyggaðrhyski sem ratar ekki í Kringluna frá Keflavík.
Einnig er reifað að flytja þangað öll aðfluttu hreysin og kofaskriflin á Árbæjarsafni af því vænlega byggingarlandi sem þau jú teppa - svo þar megi reisa alvöru hús fyrir blessað úthverfakíttið.
Gott og vel. Það er í sjálfu sér ekkert að því að hlaða ónotuðu drasli og puntudúkkum upp í Viðey - skárra væri það nú að nýta ekki plássið.
En hvers vegna að láta þar við sitja? Af hverju ekki að skófla þangað öllu því sem enginn vill og enginn þarf á að halda? Strætó, sinfó, listasöfnin, handritin, biskupinn, þingið - gamla fólkið, öryrkjana.
Út í Viðey með það allt. Við þurfum plássið.
Lestri jólakveðja er nú lokið. Við þökkum öllum þeim fjölmörgu sem annað hvort sendu kveðju(r) eða lögðu eyrun við.
Um næstu jól verður svo í fyrsta sinn hægt að senda almyndarkveðjur (hologram), en þróun búnaðar fyrir slíkt er nú vel á veg komin.