Lesbók26.10.05 — Enter

Hvurn grefillinn gengur þessum Hannesi Smárasyni eiginlega til? Finnst honum þetta fyndið?

Jújú. Það var voða fyndið þegar Flugleiðir hétu allt í einu FJ group. Jájá. Það var líka alveg hægt að brosa í kamp eða tvo þegar stjórn FJ group gekk út og Hannes fékk bara einhverja vini sína með sér. Jamm.

En svo gengur sjálfust forstýran út í fýlu og Hannes hlammar sér í stól hennar eins og ekkert sé sjálfsagaðra.

Þá eiginlega hætti þetta að vera fyndið.

Hvað á maður að halda? Maðurinn er kaupandi einhver afdönkuð uppgjafa flugfélög út um hvippa og hvappa. Hirðandi upp illfleygar blikkdósir sem enginn vill eiga eins og hráviði.

Á á hverju byggir hann þessi umsvif. Jú Flugleiðum. Okkar ástkæru, alltumlykjandi, óhaggandi Flugleiðum.

Heldur þessi eflaust ágæti Hannes að þetta óskabarn þjóðarinnar, lífæð hennar og haldreipi gegnum súrt og sætt, sé bara eins og hver önnur skiptimynt, ómerkilegur spilapeningur sem hann getur bara lagt undir að vild í spilavítum heimsins.

Hvað gerist ef spilaborgin hrynur? Ef verð á vakúmpökkuðum samlokum fer upp úr ölu valdi? Ef dönsku flugþjónarnir neita að láta hagræða sér? Ef enginn nennir lengur að fljúga samanherptur og hungurmorða í höktandi skrapatóli fyrir þúsundkall til Tromsö eða BoraBora?

Ef allt fer til andskotans?

Eigum við þá bara að taka Norrænu til Kanarí? Herjólf til Flórída? Eða kannski Baldur?

---

Það skal ég sko tryggja að þegar og ef álhólkaveldi hins kaupkáta Hannesar liðast í sundur þá skal hann persónulega fá að synda með mig á bakinu yfir Atlantsála.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Dagbók
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, 4 ... 180, 181, 182