Lesbók14.02.05 — Enter

Já nú hefur skjátunum enn verið hleypt í hana Snorrabúð.

Er það loks orðið til of mikils mælst að þingmenn hnýti á sig hálstau og girði sig - á sjálfu Alþingi? Það er aldeilis naumast hvað þessir Frjálslyndu þingmenn eru orðnir frjálslyndir. Vilja þeir ekki bara mæta í náttfötunum í pontu? Það er jú svo ósköp notalegt á síðkvöldum. Eða bara hreinlega hreiðra þar um sig berrassaðir ef loftið þyngist um of á þingpöllum?

Hvílíkt og annað eins.

Það sæi ég hæstvirtan Ólaf Thors sitja á hlýrabol og kakíbuxum á næturlöngum fundi. Gunnar Thor­odd­sen í Boss-gallabuxum og fráhnepptri Armani-skyrtu, bleikri. Hannes blessaðan Hafstein í jogginggalla með aftursetta derhúfu og gullband um sig miðjan.

Ef menn geta ekki skammast til að klæða sig eins og menn þá eiga þeir ekki að bjóða sig fram til æðstu embætta þjóðarinnar - svo einfalt er það. Þessi Örlygsson Gunnar getur efalítið fengið að spranga um berbrjósta í sínum metrósexjúal skotapilsum með alla hálsklúta heimsins við afgreiðslu í hvaða tískuverslun sem er, en hann á fjandakornið að geta stillt sig um að setja upp vínrauða kúrekahattinn rétt á meðan hann gengur erinda þjóðarinnar.

Og annað.

Það er til háborinnar skammar, minnkunar og hneisu að háttvirtum kvenkyns þingmönnum okkar skuli líðast að ríða til þings ár eftir ár íklæddar skærlitum glyðrufatnaði af verstu sort. Hver tekur mark á þingsálykturnartillögu, hvað þá frumvarpi, frá einhverri stífbónaðri gjálífisdrós í leðurjakka og með hanakamb?

Í hamingjunnar bænum látum þessi uppstríluðu tískuslys ekki komast upp með að svívirða okkar háa þing og kynda þannig undir ranghugmyndir hjá ungum og áhrifagjörnum þingmönnum á borð við hann Gunnar litla.

Ekkert ekkisens múður. Upphlut á línuna og skautbúning á ráðherra.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182