Lesbók29.11.04 — Númi Fannsker

Kæri Kenný.
Mikið er langt síðan ég hef heyrt frá þér. Mér varð bara hugsað til þín þegar ég heyrði lagið ykkar Dollýar í gær, Ælands inðestrím. Mikið óskaplega er það kósí og skemmtilegt lag - sérstaklega svona á aðventunni. Eruð þið Dollý annars eitthvað í sambandi? Eða lauk því alveg þarna eftir "atvikið" '91?

Hvernig hefurðu það annars? Ertu búinn að ná þér eftir mjaðmakúluskiptin í vor? Þú ættir nú að drífa þig í heimsókn til mín - við gætum skellt okkur í útreiðartúr og gripið í eitt pókerspil - kannski raulað saman lítinn dúett.

Jæja kallinn minn, farðu nú vel með þig og passaðu þig á indíjánunum. Bið að heilsu Barböru og krökkunum.

Þinn vinur,
Númi

 
Kaktuz — Saga
 
Kaktuz — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 180, 181, 182