Mikið skelfing er ég heppinn að vera ekki ljótur.
Og mikið met ég þá góðu blessun að hafa fullkominn líkama.
Því hugsið ykkur bara, ef til dæmis nefið á mér væri dálítið skakkt, annað eyrað stærra en hitt - eða almáttugur, ef ég hefði freknur, frekjuskarð, skalla eða gleraugu..
..svo ég tali nú ekki um óskapnaði á borð við vörtur, inngrónar táneglur, frunsur, torkennilegan hárvöxt í nefi og eyrum, skakkar tennur, útstætt barkakýli eða mislit augu..
..eða - guð hjálpi mér - ef ég væri feitur!
..EÐA GAMALL! - ULLABARASTABJAKK!
..já, ef ég þjáðist svo mikið sem af einum þessara banvænu sjúkdóma held ég svei mér að ég sjálfur gæti ekki afborið að umgangast mig - hvað þá að ég gæti boðið öðru fólki upp á samvistir við slíka ófreskju.
Þess vegna þakka ég fyrir það á hverjum degi, hvað ég er fallegur.